|
Lífshættir
arnarins
Val varpsvæða
|
Varp |
Ungar |
Fæða
Fæða arna
Örninn tekur oftast þá bráð
sem hann á auðveldast með að
glíma við á hverjum stað
og tíma en virðist ekki sérhæfa
sig í að veiða einstakar tegundir,
líkt og sumir aðrir ránfuglar.
Hann veiðir sér til matar, stelur bráð
frá öðrum fuglum og leggst á
hræ. Að sumarlagi éta ernir einkum
æðarfugl, hrognkelsi, fýl og
lunda. Rannsóknir á fæðuleifum
við arnarhreiður á árunum
19851993 leiddu í ljós að
ernir tóku alls 35 tegundir fugla, spendýra
og fiska. Fæðuval arna er því
fjölbreytt en fuglar voru 85% af áætlaðri
lífþyngd fæðunnar en fiskar
um 10%. Mikilvægustu tegundirnar voru æður
og fýll; hvor þeirra um 30% af áætlaðri
lífþyngd. Hlutur fiska í fæðu
arna hér á landi er mun minni en
víðast hvar erlendis, þar sem
fiskar eru oft meira en helmingur af þeirri
bráð sem örninn tekur.
Fýllinn Fulmarus
glacialis er 700-800 grömm
að þyngd og því hæfilegur
í eina arnarmáltíð. Ernir
veiða fýl með ýmsu móti,
renna sér á þá á
flugi, sitja fyrir þeim og grípa á
syllum í björgum. Fýl hefur fjölgað
geysilega mikið hér á landi og
er því nýttur mikið meira
af örnum en fyrr á tímum.
Æðarfuglinn Somateria
mollissima er þrisvar sinnum
þyngri en fýllinn (eða um 2 kg)
og því eftirsóttur biti. Ernirnir
veiða þessa klunnalegu og pattaralegu
sundfugla með því að steypa
sér niður að þeim á
sundi, neyða þá til að kafa
og þreyta þá uns fuglarnir liggja
örmagna í yfirborðinu. Þá
hremmir örninn kolluna í klær
sér og flýgur á brott.
Meira um lífshætti arna: Val
varpsvæða |
Varp |
Ungar
Til
baka
|