|
Lífshættir
arnarins
Val varpsvæða
|
Varp |
Ungar |
Fæða
Ungar
Arnarungar eru veikburða fyrstu 2-3 vikurnar
og foreldrarnir verða að skýla
þeim fyrir veðri og vindum. Afföll
á ungum verða aðallega á
þessum tíma, og því
er mikilvægt að raska ekki ró
fuglanna þannig að þeir séu
ekki of lengi í burtu frá viðkvæmum
ungunum.
Foreldrarnir
verða að mata ungana fyrstu 5-6 vikurnar
en að þeim tíma liðnum hafa
ungarnir öðlast nægjanlegan styrk
til að rífa sjálfir í
sig bráðina. Ungarnir eru þurftarfrekir
og er að arnungi þurfi sem svari 50
kílóum af fiskmeti frá klaki
þar til hann verður fleygur. Fullorðnir
ernir éta sem svarar um 5-10% af þyngd
sinni á dag. Arnapar sem kemur upp tveimur
ungum þarf því um hálft
tonn af fæðu sér og sínum
til lífsviðurværis yfir árið.
Fyrstu vikurnar eftir að ungarnir verða
fleygir eru þeir undir verndarvæng
foreldra sinna en hverfa síðan á
brott af óðalinu með haustinu og
þurfa upp frá því að
sjá sér farborða á eigin
spýtur. Þeir munu sjálfir
ekki takast á við foreldrahlutverkið
fyrr en að 5-10 árum liðnum.
Viðkoma
Allgengast er að aðeins einn arnarungi
komist á legg í hverju hreiðri.
Tveir ungar komast að jafnaði upp í
þriðja hverju hreiðri og stöku
sinnum hafa arnarþríburar komist
upp hér á landi
Viðkoma arnarins er yfirleitt lítil
en að meðaltali kom aðeins þriðjungur
para upp ungum 19592003. Árleg viðkoma
stofnsins á þessu tímabili
var aðeins 0,44 ungar/par en 1,34 ungar/par
hjá þeim pörum sem komu upp
ungum á annað borð. Þetta
er mun lélegri viðkoma en hjá
örnum í nágrannalöndunum.
Hreiður og egg arna misfarast iðulega
þegar veður er óhagstætt
síðla í maí og byrjun
júní, um það leyti sem
arnarungar eru að klekjast. Samband veðráttu
og viðkomu var hins vegar ekki jafnljóst
á árum áður, þegar
stofninn var minni og truflun af mannavöldum
sennilega meiri en nú. Við norðanverðan
Breiðafjörð hefur lengi gætt
meiri óvildar gagnvart erninum en annars
staðar á útbreiðslusvæði
hans; aðeins 25% para þar komu upp ungum
að jafnaði 19942003, samanborið
við 46% við sunnanverðan fjörðinn
og 39% við Faxaflóa.
Meira um lífshætti arna: Val
varpsvæða |
Varp |
Fæða
Til
baka
|