|
Lífshættir
arnarins
Val varpsvæða
|
Varp |
Ungar |
Fæða
Varp og viðkoma
Að meðaltali verpa ernir 2 eggjum
(13) og líða nokkrir daga á
milli eggjanna. Ernir fara að liggja á
þegar einu eggi er orpið og er álegutíminn
um 35 dagar. Fyrstu ungarnir klekjast því
um eða upp úr miðjum maí
en flestir um mánaðamót maí
júní. Ungarnir eru seinþroska
og verða ekki fleygir fyrr en 10 vikna gamlir,
þ.e. í ágúst. Varptími
arnarins er því mjög langur
eða 5-6 mánuðir.
Verpa snemma
Ernir halda til á varpstöðvunum
árið um kring og í venjulegu
árferði fara þeir að hyggja
snemma að varpi, stundum jafnvel í
lok febrúar en oftar um miðjan mars.
Ernir parast yfir lífstíð og
þegar annar fuglinn fellur frá getur
það tekið þann sem eftir lifir
nokkurn tíma að finna sér nýjan
maka. Þess vegna verður stundum hlé
á arnarvarpi á hefðbundnum varpstöðum
um nokkurra ára skeið.
Vorhret seinka stundum varpi og fyrir kemur að
arnarvarp misferst að mestu leyti í
kuldatíð, eins og harðindavorið
alræmda 1979. Biðilsleikir arna eru
tilkomumikil sjón sem sjaldan ber fyrir
augu, því ernirnir iðka þessa
fluglistir aðeins í stuttan tíma
áður en varp hefst.
Hreiðrið
Ernir byggja stundum stóra og mikla laupa
úr kvistum. Oftar er hreiðurgerðin
þó viðaminni, einkum þar
sem ernir hreiðra um sig í sjávarhólmum.
Á slíkum stöðum verpa fuglarnir
iðulega í ólögulega hrúgu
af hvann- og þangdrjólum.
| |
|
|
|
Hreiður
í sjávarhólma -
Ljósmynd © Daníel Bergmann
|
Meira um lífshætti arna: Val
varpsvæða |
Ungar |
Fæða
Til
baka
|