|
Haförninn
Um örninn
|
Fjöldi |
Útbreiðsla
|
Setur |
Tjón |
Staða |
Útlönd
Hvað eru margir ernir á Íslandi?
Fram
eftir öldum töldu menn erni fremur algenga
á Íslandi. Svo var enn á
árunum 181921 þegar danski
fuglafræðingurinn Frederik Faber ferðaðist
um Ísland. Hann sá erni víða
og kom að nokkrum arnarhreiðrum. Árið
1860 voru ernir taldir allalgengir, a.m.k. í
sumum landshlutum, en fremur sjaldgæfir
árið 1886. Ernir voru allalgengir og
útbreiddir varpfuglar um land allt fram
á síðari hluta 19. aldar. Vitað
er um 168 arnarsetur , forn og ný, flest
við sjávarsíðuna á
Vesturlandi. Telja menn því varlega
áætlað að hér hafi
orpið a.m.k. 100 pör áður
en skefjalausar ofsóknir gegn örnum
hófust fyrir alvöru í lok 19.
aldar. Pörin gætu þó hafa
verið mun fleiri, jafnvel 150.
Þegar ernir voru friðaðir árið
1914 er talið að í landinu hafi
verið innan við 40 pör. Fuglunum
hélt áfram að fækka fram
yfir 1920, þrátt fyrir friðun,
og útbreiðslan dróst saman.
Stofninn var því aðeins um 25
og síðan 20 pör fram undir 1970,
og innan við helmingur þeirra komu upp
ungum árlega.
Á vordögum 2003 var vitað um
57 arnarpör í landinu og hafa fuglarnir
ekki verið fleiri síðan þeir
voru friðaðir. Þrátt fyrir
það er einungis þriðjungur
þekktra arnarsetra í ábúð
og er útbreiðslan takmörkuð
við vestanvert landið. Staða arnarstofnsins
er því sterkari en um langt skeið.
Enn er þó langt í land að
arnarstofninn hafi náð sér eftir
þær ofsóknir sem dundu yfir
hann á þar síðustu öld.
Ef allt væri með felldu ættu pörin
að vera 100200 og dreifð um land
allt. Ef stofninn heldur áfram að vaxa
með líkum hætti og undanfarin
ár mun það taka meira en hálfa
öld héðan í frá
að ná því marki. En það
mun aðeins takast ef friðun arnarins verður
virt og búsvæðum ekki raskað
frekar.
Meira um örninn: Útbreiðsla
|
Setur |
Tjón |
Staða |
Útlönd
Til
baka
|