|
Haförninn
Um örninn
|
Fjöldi |
Útbreiðsla
|
Setur |
Tjón |
Staða |
Útlönd
Hvað eru mörg arnarsetur á
Íslandi?
Ernir helga sér óðal (varpsvæði)
sem nefnt er arnarsetur og eru á hverju
óðali einn eða fleiri varpstaðir.
Alls er vitað með vissu um 168 arnarsetur
í landinu og eru þau langflest á
núverandi varpslóðum arna, sem
ná frá sunnanverðum Faxaflóa
til Húnaflóa. Líklegt má
telja að arnarsetrin hafi verið mun fleiri,
því skipuleg söfnun upplýsinga
um arnarstofninn hófst ekki fyrr en um
1920 þegar flest setrin voru löngu
komin í eyði.
Hvað var stofninn stór?
Vitað er með vissu um arnarvarp á
rúmlega 100 stöðum á síðustu
öld og fram yfir aldamót. Sumir þessara
varpstaða fóru í eyði á
síðari hluta 19. aldar og ólíklegt
er að ernir hafi orpið á öllum
setrunum samtímis. Á móti
kemur að mörg arnarsetur komust aldrei
á spjöld sögunnar. Varlega áætlað
hafa því orpið hér a.m.k.
100 pör áður en ofsóknir
gegn örnum hófust fyrir alvöru
í lok 19. aldar. Pörin gætu
þó hafa verið mun fleiri, jafnvel
150.
Forn setur
Þrátt fyrir að ernir hafi ekki
orpið á sumum setrum í 100-150
ár eru enn ummerki um dvöl þeirra
þar; hvanngresi og blómstóð
vegna áburðar um aldaskeið. Á
síðustu árum (1994-2003) hefur
arnarstofninn vaxið um 15 pör (úr
42 í 57). Oftast nær hafa þessi
nýju pör orpið
á stöðum þar sem öruggar
heimildir eru um arnarvarp áður fyrr;
sum þessara setra höfðu verið
í eyði í allt að 120 ár
er ernir tóku sér þar bólfestu
að nýju. Það má því
telja líklegt að ernir muni smám
saman nema land á sínum gömlu
heimaslóðum, svo fremi sem stofninn
haldi áfram að dafna og setrunum verði
ekki raskað eða þau gerð óbyggileg
með átroðningi og mikilli umferð.
Það er því afar mikilvægt
fyrir framtíð arnarstofnsins að
vernda þessi gömlu setur.
| |
|
|
|
Lóndrangar
á Snæfellsnesi, fornt arnarsetur
Ljósmynd © Daníel
Bergmann
|
Heimildir eru um arnarvarp á sumum arnarsetrum
um 150 ára skeið, t.d. í Lóndröngum
á Snæfellsnesi, eða frá
því um 1750 og fram yfir aldamótin
1900. Síðan hafa ernir ekki orpið
á þeim slóðum. Hið
sama á við um nær öll fornu
setrin utan Vesturlands og Vestfjarða; þau
hafa flest verið í eyði í
meira ein eina öld. Endalok arnarvarps í
Arnardrang við Hjörleifshöfða
(um 1840) og á Loddudrang við Salthöfða
hjá Fagurhólsmýri í
Öræfum tengjast lambadrápi.
Bændur á þessum stöðum
grönduðu síðustu örnunum
á þeim slóðum vegna þess
að þeir töldu þá helst
til stórtæka til lambanna.
Meira um örninn: Fjöldi
|
Útbreiðsla
|
Tjón |
Staða |
Útlönd
Til
baka
|