FORSÍÐA | ÖRNINN | LÍFSHÆTTIR | VERNDUN | VÖKTUN | LJÓSMYNDIR

Haförninn

Um örninn | Fjöldi | Útbreiðsla | Setur | Tjón | Staða | Útlönd

Vernd og vöktun í dag
Fylgst hefur veri ítarlega með arnarstofninum og hann vaktaður um margra áratugaskeið og er vöxtur hans og þróun betur þekkt en hjá nokkurri annarri fuglategund hér á landi. Örninn hefur verið stranglega friðaður í 90 ár og er á válista sem tegund í hættu (EN) vegna lítils stofns (<250 fuglar).

Því miður eru blikur á lofti og örnum gæti fækkað hratt, verði slakað á friðunaraðgerðum. Vorið 2003 sýknaði Hæstiréttur mann af ákæru um að hafa raskað varpstað arna (sjá dóm) og þar með komið í veg fyrir að ernir hreiðruðu um sig á gamalgrónu arnarsetri. Dómurinn taldi að ákvæði í fuglaverndarlögum væru óljós hvað varðar skilgreiningu á hreiðri og varpstað. Í kjölfarið höfðu nokkrir æðarbændur hraðar hendur og komu fyrir búnaði á þremur stöðum við norðanverðan Breiðafjörð. Með því móti tókst þeim að hindra arnarvarp á þeim setrum, a.m.k. tímabundið.

Vegna þeirrar réttaróvissu sem skapaðist um verndun varpstaða arna í kjölfar Hæstaréttardóms vorið 2003 er nú unnið að lögfestingu ákvæða sem kveða á um skýra vernd þeirra fyrir hvers kyns röskun.

Til baka

Fuglaverndarfélag Íslands – www.fuglavernd.is
Náttúrufræðistofnun Íslands – www.ni.is

Allur réttur áskilinn © 2004-2005