|
Haförninn
Um örninn
|
Fjöldi |
Útbreiðsla
|
Setur |
Tjón |
Staða |
Útlönd
Örninn í öðrum löndum
Örnum var útrýmt víða
í Evrópu, fyrst með beinum fækkunaraðgerðum,
en á síðustu áratugum
hefur efnamengun og eyðilegging búsvæða
reynst örnum skeinuhætt. Arnarstofnar
í Norður-Evrópu eru víðast
hvar í örum vexti, m.a. í Noregi,
Svíþjóð, Þýskalandi
og Póllandi. Alþjóða fuglaverndarráðið
flokkar örninn meðal sjaldgæfra
fugla sem vernda þarf sérstaklega
en hann er ekki talinn í útrýmingarhættu.
Ernir eiga í vök að verjast víða
á útbreiðslusvæði
sínu og eru því stranglega
friðaðir. Nýlega var samþykkt
sérstök verndaráætlun
um örninn í Evrópu.
Í flestum löndum Evrópu þar
sem örninn verpur er rekið öflugt
verndar- og rannsóknarstarf og hefur verið
svo um áratugaskeið. Það
á sér lengsta sögu í
Þýskalandi,
Svíþjóð
og Póllandi.
Til
baka
|