FORSÍÐA | ÖRNINN | LÍFSHÆTTIR | VERNDUN | VÖKTUN | LJÓSMYNDIR

Verndun arnarins

Friðun | Verndun | Fuglaverndarfélagið | Samstarf | Árangur

Verndaráætlun fyrir haferni

Convention of the Conservation of European Wildlife and Natural Habitats: Recommendation No. 92 (2002) on sixteen new Action Plans for most threatened birds in the Convention´s area. Adopted by the Standing Committee on 5 December 2002.

Í þessari verndaráætlun er að finna ráðleggingar um forgangsröðun verndaraðgerða, m.a. með því að semja verndaráætlanir og lögfesta friðun varpstaða og búsvæða. Eftirfarandi tilmæli er þar m.a. að finna:
• Tryggja þarf með lögum verndun tegundarinnar og búsvæða hennar og fylgja þessum lögum fast eftir
• Hrinda í framkvæmd ákvæðum alþjóðlegra laga og samninga.
• Verndun varpstaða og búsvæða
• Verndun og endurheimt fæðusvæða
• Draga úr dauðsföllum af mannavöldum (raflost og áflog á línur)
• Hætta að bera út eitur
• Koma í veg fyrir notkun þrávirkra lífrænna efna
• Fylgjast þarf með mengandi efnum
• Árleg vöktun á stofnstærð og varpárangri er taki til alls útbreiðslusvæðis í viðkomandi landi
• Upplýsingar og fræðsla
• Semja verndaráætlun fyrir hvert land (lágmarkskrafa!)

Sumt af því sem drepið er á hér að framan er í viðunandi farvegi hér á landi, t.d. árleg vöktun á stofnstærð og viðkomu arna og löngu hætt er að bera út eitur. Þá eru upplýsingar og fræðsla allgóð, svo og takmörkun á notkun þrávirkra efna. Íslendingar hafa tekið í lög nokkra helstu alþjóðlega samninga er við eiga, þar á meðal Ramsar-, Bernar- og Washingtonsamninginn. Eftir er að samþykkja Bonnsamninginn. Verndun varpstaða og búsvæða, auk verndaráætlunar fyrir örninn, ætti að vera forgangsverkefni varðandi verndun arnarins.

Til baka

Fuglaverndarfélag Íslands – www.fuglavernd.is
Náttúrufræðistofnun Íslands – www.ni.is

Allur réttur áskilinn © 2004-2005