|
Verndun
arnarins
Friðun
|
Verndun |
Fuglaverndarfélagið
|
Samstarf |
Árangur
Arnarstarfið ber árangur
Samkvæmt talningum Agnars Ingólfssonar
stóð arnarstofninn í stað
frá 19591964, var 2122 pör,
en innan við helmingur þeirra kom upp
ungum að jafnaði. Árið 1969,
fimm árum eftir samþykkt eitrunarbanns,
hafði arnarstofninn breyst lítið
(var 2223 pör) og hafði þá
verið nær óbreyttur í
20 ár. Þó mátti sjá
önnur batamerki, m.a. tóku ernir sér
bólfestu á nokkrum setrum sem höfðu
verið í eyði um langa hríð.
Á næstu árum fór örnum
loks að fjölga og var vöxtur arnarstofnsins
að meðaltali 3,5% á ári,
19671987, og pörunum fjölgaði
úr 20 í 40. Á þessum
árum byrjuðu ernir að verpa að
nýju við norðanverðan Faxaflóa
og þeim fjölgaði talsvert við
sunnanverðan Breiðafjörð. Öðru
máli gegndi um erni við norðanverðan
Breiðafjörð en þar hefur varpstofninn
breyst lítið í marga áratugi.
Þetta svæði hefur jafnan verið
aðalarnarsvæði landsins svo langt
sem heimildir ná.
Vöxtur arnarstofnsins upp úr 1970
er án efa því að þakka
að draga tók úr afföllum
á ungum örnum með eitrunarbanninu
1964. Fyrstu batamerkin á arnarstofninum
komu fram 56 árum eftir að bannið
gekk í gildi en ernir fara að verpa
57 ára gamlir. Auk þess kann
óvenjulega góður varpárangur
arna árið 1967 (17 ungar komust upp)
að hafa flýtt fyrir vexti stofnsins.

Meira um verndun: Verndun
|
Fuglaverndarfélagið
|
Samstarf
Til
baka
|