|
Verndun
arnarins
Friðun
|
Verndun |
Fuglaverndarfélagið
|
Samstarf |
Árangur
Samstarf við bændur
Á stofnfundi Fuglaverndarfélagsins
lagði Björn Guðbrandsson ríka
áherslu á tvennt til að styrkja
arnarstofninn: eitrunarbann og góð
samskipti við bændur á arnarslóðum.
Björn og félagar hans í Fuglaverndarfélaginu
fóru um áratugaskeið í
heimsókn til hinna svokölluðu
arnarbænda. Markmið þessara ferða
var bæði að styrkja tengslin við
þá sem bjuggu í nábýli
við örninn en einnig að kanna ástand
og viðkomu arnarstofnsins. Hinn vísindalegi
grundvöllur þessara ferða byggði
á vinnu Agnars Ingólfssonar, síðar
prófessors. Agnar rannsakaði örninn
kringum 1960 og ferðaðist síðan
með Birni á arnarslóðir
árið 1964. Upp frá því
tók félagið saman árlegar
trúnaðarskýrslur um arnarstofninn
þar sem gerð var grein fyrir þessum
athugunum.
Fljótlega fór Fuglaverndarfélagið
að beita sér fyrir því
að tekin væru á leigu hlunnindi
til að draga úr truflun í grennd
við arnarhreiður. Einnig voru greidd verðlaun
fyrir arnarunga sem komust upp, og kostað
eftirlit með örnum og útburð
hræja á vetrum. Þetta var gert
af miklum vanefnum og oft úr eigin vasa
frumherjanna.
Baráttan gegn eitrun
Fuglaverndarfélagið fór þegar
að beita sér af alefli fyrir verndun
arnarins og átti það baráttumál
eftir að móta starfið næstu
30 árin. Öllum alþingismönnum
var ritað bréf í febrúar
1963 og þeir hvattir til að styðja
þingsályktunartillögu Bjartmars
Guðmundssonar á Sandi um ráðstafanir
til verndunar arnarins. Einnig var um það
leyti fundað með búnaðarmálastjóra
og veiðistjóra. Sá síðarnefndi
tók vel í hugmyndir um tímabundið
eitrunarbann en forysta bænda var því
mótfallinn í fyrstu. Með sleitulausri
baráttu tókst Fuglaverndarfélaginu
og ýmsum eldhugum að sannfæra
alþingismenn um nauðsyn eiturbannsins.
Félagið naut m.a. liðsinnis Magnúsar
Jóhannssonar, útvarpsvirkjameistara,
er gert hafði kvikmynd um örninn. Hann
starfaði á Alþingi og notaði
aðstöðu sína til að telja
þingmenn á sitt band.
Alþingi kúvendir í eitrunarmálum
Mikil umskipti höfðu orðið í
viðhorfum alþingismanna á þeim
sex árum sem liðin voru frá
því að hin illræmdu eitrunarlög
voru sett árið 1957. Nú, þegar
til tals kom að setja á tímabundið
bann við eitrun voru langflestir því
fylgjandi og aðeins heyrðust hjáróma
andmæli nokkurra þingmanna. Helstu
stuðningsmenn áframhaldandi refaeitrunar
voru þingmenn Vesturlands, sem óttuðust
að án eiturútburðar yrði
erfitt að vinna refi á hinum víðáttumiklu
heiðalöndum. Einn þeirra, Ásgeir
Bjarnason, bóndi í Ásgarði
í Dölum og síðar formaður
Búnaðarfélags Íslands,
var ekki í nokkrum vafa: Og svo er
þetta, sem er aðalkjarni þessara
laga, að vernda sauðfjárstofninn
í landinu fyrir ágangi þessara
vargdýra [þ.e. refa og minka], og
þar verður að gera upp á
milli þess gildis, sem arnarstofninn kann
að hafa fyrir landsmenn, annars vegar og sauðfjárstofninn
hins vegar. Og þegar þarf að gera
það dæmi upp, er ég ekki
í neinum vandræðum, vegna þess
að ég tel, að sauðfjárstofninn
hafi það miklu meira gildi fyrir landsmenn
en arnarstofninn, að mér finnst, að
þar verði heldur á hann að
halla, ef það er nauðsynlegt, sem
ég tel að þurfi ekki að vera,
þegar búið er að skoða
þetta mál niður í kjölinn.
Eitrun bönnuð 1964
Eitrunarbannið tók gildi árið
1964 og átti að standa næstu
fimm árin. Reyndin varð aftur á
móti sú að eitrun ætluð
refum var aldrei tekin upp aftur, þrátt
fyrir tilraunir á Búnaðarþingi
í þá veru árið
1969. Þetta mikilvæga baráttumál
Fuglaverndarfélagsins var því
í raun farsællega til lykta leitt
þegar á fyrsta starfsári félagsins.
Á fyrstu starfsárum Fuglaverndarfélagsins
var mikill áhugi meðal Alþingismanna
á verndun arnarins og meðal helstu
talsmanna arnarvina á Alþingi var
Birgi Kjaran er einnig var formaður Náttúruverndarráðs
á þessum árum. Bók
Birgis um Haförninn var glæsilegt og
áhrifamikið innlegg í sem vakti
verðskuldaða athygli á erninum
og sögu hans.
Meira um verndun: Verndun
|
Fuglaverndarfélagið
|
Árangur
Til
baka
|