banner
Velkomin á arnarvefinn!

Örninn er meðal sjaldgæfustu varpfugla landsins en árið 2005 var talið að hér væru 65 fullorðin pör, auk ungfugla. Fram á seinni hluta 19. aldar var örninn miklu algengari og varp þá í öllum landshlutum en nú er útbreiðslan að mestu bundin við Vesturland. Vöxtur og viðkoma arnarstofnsins er lítil, þrátt fyrir alfriðun í 90 ár en þó hefur örnum fjölgað hægt og bítandi í kjölfar þess að eitrun fyrir refi var bönnuð árið 1964.

Á varptíma er örninn afar viðkvæmur fyrir truflunum og því misferst varpið iðulega ef ernir eru truflaðir við hreiður. Örninn verpur á sömu stöðum ár eftir ár og kynslóð eftir kynslóð og því er mikilvægt að tryggja vernd þessara varpstaða og búsvæða arnarins um ókomin ár. Þá má hvergi slaka á öðrum friðunaraðgerðum til að tryggja áframhaldandi vöxt arnarstofnsins.

Örninn (haförninn) verpur á Íslandi, Grænlandi og strjált í Evrópu og Asíu. Örnum var útrýmt víða í Evrópu, fyrst með beinum ofsóknum en síðar reyndist efnamengun og eyðilegging búsvæða örnum skeinuhætt. Á síðustu áratugum hafa arnarstofnar í Norður-Evrópu tekið að vaxa að nýju í kjölfar strangra friðunaraðgerða. Ernir eru þó enn alfriðaðir og á válistum alls staðar í heimkynnum sínum.

Arnarvefurinn er fyrsta skrefið í að gera fræðslu um örninn aðgengilegri og verður hann vettvangur þar sem hægt verður að fylgjast með vöktun, rannsóknum, friðun og afkomu arnarins. Vefurinn er samstarfsverkefni Fuglaverndarfélags Íslands og Náttúrufræðistofnunar Íslands, og er styrktur af Þjóðhátíðarsjóði sem í áraraðir hefur styrkt arnarstarf Fuglaverndarfélagsins.

nilogo logo