banner

Haförninn

Um örninn | Fjöldi | Útbreiðsla | Setur | Tjón | Staða | Útlönd

Haförninn, sem oftast er kallaður örninn, er stór ránfugl, vænghafið um 220 cm og lengdin frá goggi aftur á stélenda er um 90 cm. Kvenfuglinn er nokkru stærri og þyngri (5–6 kg) en karlfuglinn (4–5 kg). Ernir hafa gular klær, goggurinn er dökkur á ungfuglum en lýsist og verður gulur á kynþroska örnum. Ungir ernir á fyrsta ári eru dökkbrúnir en stél hvítt á fullorðnum örnum. Háls, herðar og höfuð lýsast og verða rjómagul með aldrinum. Latneskt heiti arnarins er Haliaeetus albicilla.

 

portrett

 

Fullorðnir ernir halda sig að mestu leyti í grennd við varpstöðvarnar. Sums staðar erlendis eru ungir ernir farfuglar eða flakka um. Ernir ferðast þó fremur lítið samanborið við marga aðra fugla og eftir að útbreiðslan dróst saman í kjölfar fækkunar þeirra á síðustu öld, einöngruðust margir arnarstofnar. Ernir á Íslandi og Grænlandi hafa sennilega verið algjörlega einangraðir í mjög langan tíma og ekkert bendir til þess að ernir annars staðar frá flækist þangað.

Alls hafa verið merktir um 238 ernir hér á landi, aðallega stálpaðir ungar í hreiðrum. Þeir tiltölulega fáu fuglar sem hafa endurheimst fundust flestir innan 50 km frá merkingastað en ungir ernir hafa sést um land allt og flakka því víða um.

Hversu gamlir verða ernir ?
Í 160 ára gamalli ritgerð eftir Jónas Hallgrímsson segi að örninn verði 100 ára eða meira og geti flogið þrjár þingmannaleiðir á klukkustundinni. Ernir geta að vísu orðið mjög gamlir, það er að segja þeir sem komast yfir erfiðasta hjallann - fyrsta veturinn. Merkingar á örnum erlendis gefa til kynna að sumir þeirra komist á fertugsaldurinn og í dýragörðum hafa ernir lifað fram undir sextugt.