banner

Haförninn

Um örninn | Fjöldi | Útbreiðsla | Setur | Tjón | Staða | Útlönd

Haförninn, sem oftast er kallaður örninn, er stór ránfugl. Vænghafið um 220 cm og lengdin frá goggi aftur á stélenda er um 90 cm. Kvenfuglinn er nokkru stærri og þyngri (5–6 kg) en karlfuglinn (4–5 kg). Ernir hafa gular klær og goggurinn er dökkur á ungfuglum en lýsist og verður gulur á kynþroska örnum. Ungir ernir á fyrsta ári eru dökkbrúnir en stél hvítt á fullorðnum örnum. Háls, herðar og höfuð lýsast og verða rjómagul með aldrinum. Latneskt heiti arnarins er Haliaeetus albicilla.

 

portrett

 

Fullorðnir ernir halda sig að mestu leyti í grennd við varpstöðvarnar. Sums staðar erlendis eru ungir ernir farfuglar eða flakka um. Ernir ferðast þó fremur lítið samanborið við marga aðra fugla og eftir að útbreiðslan dróst saman í kjölfar fækkunar þeirra á síðustu öld, einöngruðust margir arnarstofnar. Ernir á Íslandi og Grænlandi hafa sennilega verið algjörlega einangraðir í mjög langan tíma og ekkert bendir til þess að ernir annars staðar frá flækist hingað.

Alls hafa verið merktir um 238 ernir hér á landi, aðallega stálpaðir ungar í hreiðrum. Þeir tiltölulega fáu fuglar sem hafa endurheimst fundust flestir innan 50 km frá merkingastað en ungir ernir hafa sést um land allt og flakka því víða um.

Í 160 ára gamalli ritgerð eftir Jónas Hallgrímsson segi að örninn verði 100 ára eða meira og geti flogið þrjár þingmannaleiðir á klukkustundinni. Ernir geta að vísu orðið mjög gamlir - það er að segja þeir sem komast yfir erfiðasta hjallann - fyrsta veturinn. Og merkingar á örnum erlendis gefa til kynna að sumir þeirra komist á fertugsaldurinn og í dýragörðum hafa ernir lifað fram undir sextugt.