|
Haförninn
Um örninn | Fjöldi | Útbreiðsla | Setur | Tjón | Staða | Útlönd
Örninn í öðrum löndum Örnum var útrýmt víða í Evrópu, fyrst með beinum fækkunaraðgerðum, en á síðustu áratugum hefur efnamengun og eyðilegging búsvæða reynst örnum skeinuhætt. Arnarstofnar í Norður-Evrópu eru víðast hvar í örum vexti, m.a. í Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi og Póllandi. Alþjóða fuglaverndarráðið flokkar örninn meðal „sjaldgæfra fugla“ sem vernda þarf sérstaklega en hann er ekki talinn í útrýmingarhættu. Ernir eiga í vök að verjast víða á útbreiðslusvæði sínu og eru því stranglega friðaðir. Nýlega var samþykkt sérstök verndaráætlun um örninn í Evrópu.
Í flestum löndum Evrópu þar sem örninn verpur er rekið öflugt verndar- og rannsóknarstarf og hefur verið svo um áratugaskeið. Það á sér lengsta sögu í Þýskalandi, Svíþjóð og Póllandi.
|