banner

Verndun arnarins

Friðun | Verndun | Fuglaverndarfélagið | Samstarf | Árangur

Verndun varpstaða
Ernir nota sömu varpsvæði ár eftir ár og eru viðloðandi þar allt árið. Varpstaðir (hreiðurstaðir) geta verið nokkrir á sama setri en til lengri tíma eru það yfirleitt tiltölulega fáir staðir á hverju setri sem eru nýttir til varps. Það er því mikilvægt að ernir getið orpið óáreittir á þessum hefðabundu stöðum. Því er nauðsynlegt að skýr ákvæði séu í lögum um verndun slíkra staða, jafnt þeirra sem ernir hafa orpið á undanförnum árum sem og gamalla varpstaða sem ernir kunna að taka sér bólfestu á þegar stofninn stækkar.

Í tillögum aðildarþjóða Bernarsamnings um verndaráætlun fyrir haferni (linka í hana) er sérstaklega brýnt fyrir aðildarþjóðum að festa í lög ákvæði um verndun varpstaða og umgengni við hreiður. Lagt er til að slík verndun taki til:
• Allra setra í ábúð
• Einstakra varpstaða
• Setra sem nú eru í eyði.

Með öðrum orðum er lagt til að verndun taki til allra þekktra arnarsetra og einstakra varpstaða innan þeirra. Þá er bent á mikilvægi þess að upplýsingar um varpstaði verði haldið leyndum eins og kostur er og að umferð í grennd við hreiður sé takmörkuð frá því um 4 vikum áður en fuglarnir verpa og allan þann tíma sem ungar eru í hreiðrinu. Á Íslandi þýðir þetta frá um 1. –15. mars allt til ágústloka. Það frumvarp umhverfisráðherra (linkur) sem lagt var fyrir Alþingi í febrúar 2004 tekur á þessu.

Verndaráætlun fyrir haferni
Í desember 2002 samþykktu aðildarþjóðir Bernar-samningsins verndaráætlun fyrir haferni 2002. Er hún hluti af ráðlegginum til aðildarþjóðanna varðandi þær fuglategundir sem eru í mestri hættu á því svæði sem samningurinn nær yfir.