|
Verndun arnarins Friðun | Verndun | Fuglaverndarfélagið | Samstarf | Árangur Örninn friðaður 1913 Hinn 10. nóvember 1913 samþykkti Alþingi lög um friðun fugla og eggja. Merkustu nýmæli þeirra voru alfriðun arna í fimm ár frá og með 1. janúar 1914, og höfðu þau ákvæði verið sett í frumvarpið fyrir tilstilli þeirra Bjarna Sæmundssonar og Peters Nielsen. Slíkt var einsdæmi á þessum tíma og reyndar í fyrsta sinn sem örninn var friðaður í nokkru landi. Um þetta leyti voru síðustu ernirnir að deyja út á Bretlandseyjum og Norðmenn ofsóttu erni af kappi, greiddu reyndar verðlaun fyrir arnardráp allt til 1968. Í nefndaráliti með friðunarfrumvarpinu haustið 1913 kom fram að örninn væri nú mjög sjaldgæfur orðinn og það verði „að teljast óviðfelldið að örninn verði hér útdauður með öllu.” En þingmenn vildu ekki „alfriða hann til langframa, einungis reisa skorður við því að honum sé gjöreytt.” Friðaður skamman tíma í senn Í hættu í hálfa öld – þrátt fyrir friðun 1945-1948 Á árunum 1945 til 1948 ferðist Björn Björnsson, ljósmyndari frá Norðfirði víða um varpsvæði arnarins við Breiðafjörð. Honum ofbauð framganga manna gagnvart erninum og skeytingarleysi fyrir lögum og reglum; ernir voru vísvitandi drepnir, hreiður eyðilögð og lögboðin refaeitrun hafði orðið mörgum örnum að aldurtila á undangengnum árum. Björn sendi menntamálaráðuneytinu erindi um málið og í var þá sýslumönnum falið að brýna fyrir mönnum að virða friðunarákvæðin. Stjórnvöld skiptu sér að öðru leyti lítið af erninum en sáu þó til þess að hann væri áfram friðaður Allt frá því er örninn var friðaður árið 1914 vöruðu margir fuglaverndarmenn við þeirri ógn sem örnum stafaði af eiturútburði. Meirihluti alþingismanna skellti skollaeyrum við slíku tali þegar hin alræmdu eitrunarlög voru sett árið 1957 en átti eftir snúa við blaðinu nokkrum árum seinna. Til þess að koma á móts við aðvaranir arnarvina var eitrun bönnuð á meginútbreiðslusvæði arnarins á Vesturlandi og Vestfjörðum. Það kom þó að litlum notum því bannið var virt að vettugi og ernir flögruðu í aðra landshluta og drápust þar af eitri. |








