|
Verndun arnarins Friðun | Verndun | Fuglaverndarfélagið | Samstarf | Árangur Verndun varpstaða Í tillögum aðildarþjóða Bernarsamnings um verndaráætlun fyrir haferni (linka í hana) er sérstaklega brýnt fyrir aðildarþjóðum að festa í lög ákvæði um verndun varpstaða og umgengni við hreiður. Lagt er til að slík verndun taki til: Með öðrum orðum er lagt til að verndun taki til allra þekktra arnarsetra og einstakra varpstaða innan þeirra. Þá er bent á mikilvægi þess að upplýsingar um varpstaði verði haldið leyndum eins og kostur er og að umferð í grennd við hreiður sé takmörkuð frá því um 4 vikum áður en fuglarnir verpa og allan þann tíma sem ungar eru í hreiðrinu. Á Íslandi þýðir þetta frá um 1. –15. mars allt til ágústloka. Það frumvarp umhverfisráðherra (linkur) sem lagt var fyrir Alþingi í febrúar 2004 tekur á þessu. Verndaráætlun fyrir haferniÍ desember 2002 samþykktu aðildarþjóðir Bernar-samningsins verndaráætlun fyrir haferni 2002. Er hún hluti af ráðlegginum til aðildarþjóðanna varðandi þær fuglategundir sem eru í mestri hættu á því svæði sem samningurinn nær yfir. |








