banner

Vöktun og rannsóknur

Vöktun | Rannsóknir | Merkingar

Rannsóknir
Örninn er afar viðkvæmur og því þarf mikla alúð og nærgætni í umgengni við þennan sjaldgæfa fugl. Rannsóknir á örnum hafa lengst af beinst að því að meta hversu margir fuglar væru á landinu og eins hversu margir ungar hafa komist á legg. Einnig hefur verið farið í saumana á tiltækum gögnum um útbreiðslu og tíðni arna áður fyrr. Samhliða heimsóknum í hreiður hafa ungar verið merktir, einkum á síðari árum og fæðuleifum safnað til greiningar. Þá hafa tvívegis farið fram ítarlegar rannsóknir á meintu tjóni af völdum arna; 1959-60 og 1991.

Nýverið hófust rannsóknir á erfðabreytileika arnarstofnsins og eru þær unnar af Náttúrufræðistofnun og sænskum samstarfsaðilum annars vegar (samanburður á arnarstofnum á norðurhveli) og hins vegar af Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi og Náttúrufræðistofnun (erfðabreytileiki íslenska arnarstofnsins). Einnig er unnið að rannsóknum á eiturefnum í íslenskum örnum i samstarfi fyrrgreindra aðila og Háskóla Íslands.

merking1

Finnur Logi frá Fuglavernd og Kristinn Haukur frá Náttúrufræðistofnun,
að störfum við rannsóknir og merkingu arnarunga.
Ljósmynd © Daníel Bergmann