Ársskýrsla Fuglaverndar 2009 Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 23. Mars 2010 22:44

Ársskýrsla Fuglaverndar 2009

Lögð fram á aðalfundi 8. mars 2010

Stjórn starfsársins var kosin á aðalfundi þann 19. febrúar 2009 og skipti hún með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi á þennan hátt:

Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar; Jakob Sigurðsson, varaformaður; Björk Þorleifsdóttir, ritari, Vigfús Eyjólfsson, gjaldkeri; Ásgerður Einarsdóttir, Edward B. Rickson og Rannveig Thoroddsen meðstjórnendur.  Vigfús hætti í stjórn á vormánuðum og tók Edward þá við gjaldkerastöðunni.

Aðalfundur ákvað óbreytt árgjald á starfsárinu.

Stjórnarfundir voru haldnir 7 sinnum á árinu: 27. janúar, 3. mars, 18. maí, 19. júní, 18. ágúst, 27. september og 18. nóvember.

Fjölgun félaga nam 18% á árinu, miðað við greiðandi félaga.  Félagatalan er nú komin yfir 1000, en með fjölskylduaðildum er hún nokkuð hærri.

Rekstur

Skrifstofa
Fuglavernd leigði skrifstofuaðstöðu af Landvernd í Skúlatúni 6 þar sem Skógræktarfélag Íslands er einnig til húsa.  Auglýst var eftir starfsmanni og bárust yfir 30 umsóknir.  Úr vöndu var því að ráða við ráðningu starfsmanns, umsækjendur voru flestir mjög hæfir til starfans.  Hólmfríður Arnardóttir var ráðin til starfans og þann 1. nóvember hóf hún störf fyrir félagið í 50% starfi.

Fjárhagur
Tekjur félagsins jukust nokkuð árið 2009 og námu um 8,7 milljónum.  Mest var aukningin í félagsgjöldum og síðan fékkst styrkur af fjárlögum ríkisins.

Hjálmar R. Bárðarson náttúruljósmyndari og bókaútgefandi m.m. lést á árinu og arfleiddi hann Fuglavernd ásamt nokkrum öðrum félögum og stofnunum, en hann og Else kona hans voru barnlaus.  Hlutur okkar er ætlaður til að endurheimta votlendi, sem gæti e.t.v. orðið keldusvíni til gagns, til verndar varpsvæðum arnarins og til að stuðla að uppbyggingu felubyrgja í fuglafriðlöndum.  Félagið stendur í mikilli þakkarskuld við þennan höfðingja og velgjörðarmann.

 

Athugasemdir og kærur

Þann 22. október var kveðinn upp dómur í Hæstarétti í máli sem Fuglavernd ásamt landeigendum og fleiri náttúruverndarfélögum höfðuðu vegna úrskurðar Jónínu Bjartmars, fyrrverandi umhverfisráðherra um leyfa vegagerð um Teigsskóg í Reykhólasveit, á sunnanverðum Vestfjörðum.  Málshöfðendur töldu slíka vegagerð hafa í för með gríðarleg óafturkræf umhverfisspjöll í nær ósnortnu umhverfi og höfðuðu því mál til að fá úrskurð ráðherra ógildan.  Hæstiréttur felldi úrskurðinn úr gildi.

Í júlí sendi félagið áskorun til umhverfisráðherra vegna fækkunar sjófugla.  Í september skoraði Fuglavernd á ráðherra að fullgilda AEWA samkomulagið (Alþjóðlegt samkomulag um vernd farfugla og votlendisfugla í Afríku og Evrasíu (African-Eurasian Migratory Waterbird Agreement)).

Sýningar, fyrirlestrar og viðburðir

Sýningar og viðburðir
Fuglavernd hélt nú í fyrsta sinn sýningu á fuglaljósmyndum og fór hún allvíða.  Sýningin var fyrst sett upp í Iðnaðarmannahúsinu við Tjörnina á vetrarhátíð í febrúar og síðan var hún sett upp í þjóðgörðunum á Skaftafelli og í Jökulsárgljúfrum.  Alls áttu 12 félagar myndir á sýningunni.  Björk og Einar Ó. Þorleifsbörn, ásamt Jakobi Sigurðssyni áttu veg og vanda að sýningunni, sem bar yfirskriftina „Fagurt galaði fuglinn sá“.  Samhliða opnun sýninganna í þjóðgörðunum var dagskrá helguð fuglum.

Fuglavernd var með kynningu á Umhverfisþingi í október.  þá stóð Einar Ó. Þorleifsson vaktina fyrir félagið á kynningarhelgi í Hafnarfirði um fuglagarðinn í samstarfi við Skógræktarfélag Hafnafjarðar.  Í nóvember og desember var Fuglavernd með kynningar- og sölubás á jólamarkaði Skógræktarfélags Reykjavíkur, þar sem félagar skiptust á að standa vaktina.

Fræðslufundir
Fræðslufundir voru haldnir í hinum ágæta sal bankans, sem þegar þetta er ritað er kenndur við Arion, við Borgartún.  Þeir voru 6 á árinu.

Á fyrsta fræðslufundi ársins, 15. janúar, hélt Erpur Snær Hansen erindi sem hann nefndi sjófuglaparadísin Vestmannaeyjar.  Hinn 7. apríl hélt Kristján Ingimarsson erindi um fuglalíf á Djúpavogi og fuglaverkefnið birds.is.  Þann 3. september sögðu þeir Gunnar Þór Hallgrímsson og Jóhann Óli Hilmarsson frá fuglalífi og mannlífi á Ammassalik svæðinu og við Zackenberg á norðaustur Grænlandi.  Þriðjudaginn 15. september sagði búlgarski fuglafræðingurinn Sergey Dereliev frá AEWA, sem er Alþjóðlegur samningur um vernd farfugla og votlendisfugla í Afríku og Evrasíu (African-Eurasian Migratory Waterbird Agreement). Sáttmálinn er í tengslum við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP).  Þann 4. nóvember sagði Yann Kolbeinsson ferðasögu frá Ecuador og sýndi ljósmyndir.  Loks sýndi Magnús Magnússon kvikmynd sína „Í ríki fálkans með Ólafi K. Nielsen“ þann 3. desember og sátu þeir félagar fyrir svörum að sýningu lokinni ásamt Karli Sigtryggssyni, sem var hægri hönd Magnúsar við gerð myndarinnar.

Garðfuglakönnun og garðfuglaskoðun
Garðfuglakönnun veturinn 2009–2010 hófst þann 25. október og var nú haldin í 16. sinn. Könnunin stendur allan veturinn og þátttakendur sem fóðra fugla í görðum sínum skrá jafnframt fuglalífið á tímabilinu. Garðfuglaskoðun er styttri athugun, var hrundið af stað veturinn 2004 og var nú haldin frá 23.-26. janúar 2009. Ólafur Einarsson og Örn Óskarsson eru umsjónarmenn þessara viðburða en Ólafur hefur haldið utan um garðfuglakönnun frá upphafi.

Fundir erlendis
Alþjóða fuglaverndarsamtökin BirdLife International héldu svonefndan Evrópufund framkvæmdastjóra á Möltu í nóvember og sótti formaður fundinn.  Hann ritaði grein í 6. tbl. Fugla um hann.

Í febrúar var alþjóðlegur vinnufundur um grænlensku blesgæsina á einni Islay við Skotland.  Einar Ó. Þorleifsson sótti fundinn sem fulltrúi Fuglaverndar.

Útgáfa

Tímaritið Fuglar kom út í 6. sinn í desember en því er einungis dreift til félaga í Fuglavernd og er eitt vandaðasta tímarit um fugla og náttúru sem gefið er út á Íslandi.  Ritstjóri var sem fyrr Daníel Bergmann.

Fuglavernd gaf út dagatal með úrvali fuglamynda sem voru á sýningu áhugaljósmyndara sem Fuglavernd stóð fyrir á árinu.

Fugl vikunnar hóf göngu sína í Fréttablaðinu á aðventu.  Þetta er vikulegur pistill, þar sem einn fugl er kynntur hverju sinni, sagt frá amstri hans og útliti.  Reynt er að velja fugla sem eru í umræðunni á hverjum tíma.

Friðlandið í Flóa

Vinna hélt áfram í Friðlandinu við að búa í haginn fyrir fólk og fugla.  Sveitarfélagið og Fuglavernd gerðu veglegt bílastæði við skoðunarhúsið við Stakkholt.  Lokið var við húsið og í framhaldi af því var grafin tjörn framan við húsið, til að lokka fugla nær því.  Meðfram tjarnargerðinni var fyllt uppí nokkra skurði þar nærri.  Í ágúst var hópur sjálfboðaliða frá samtökunum Veraldarvinum að störfum í Friðlandinu, þeir unnu aðallega að frágangi kringum tjörnina og á og við skoðunarhúsið.

Boðið var uppá fuglaskoðun í tengslum við hátíðina Vor í Árborg í maílok, félagar í ljósmyndaklúbbnum Fókus heimsóttu staðinn, leikskólabörn og foreldrar þeirra heimsóttu Friðlandið, svo lítið eitt af viðburðum sé tínt til.  Mikil ásókn fuglaskoðara og fuglajósmyndara, innlendra sem erlendra, var á svæðið.  Katrín Georgsdóttir, sérfræðingur umhverfismála í V-Flóa vann með Fuglavernd í Friðlandinu.

Loks má geta þess að kvikmynd Dúa J. Landmark, Úti í mýri, sem fjallar um Friðlandið, var tilbúin, en hún var frumsýnd opinberlega eftir áramót.

Samstarf við Umhverfisráðuneytið

Nokkrir fundir voru haldnir með ráðherra og/eða starfmönnum ráðuneytisins á árinu, bæði að frumkvæði félagsins og svo sem hluti af samstarfssamningi ráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka.  Ráðuneytið styrkti starfsemi Fuglaverndar, eins og fram kemur í ársreikningum félagsins.  Fuglavernd tók þátt í alþjóðlega farfugladeginum á Álftanesi, í samstarfi við ráðuneytið og jafnframt í sýningu á Umhverfisþingi í október.

Sérverkefni

Fyrirlestraröð
Einar Ó. Þorleifsson hélt nokkra fyrirlestra víða um land um garðfugla og fugla og loftslagsbreytingar.

Himbrimavöktun

Fuglavernd stendur fyrir vöktun á himbrima á völdum vötnum víða um land.  Ólafur Einarsson og Örn Óskarsson eru í forsvari fyrir verkefninu.