| Ársskýrsla Fuglaverndar 2005 |
|
| Þriðjudagur, 18. Apríl 2006 00:00 |
Skýrsla formanns Fuglaverndarfélags Íslands fyrir árið 2005Lögð fram á aðalfundi 18. apríl 2006 Stjórn, aðsetur, félagarÁ aðalfundi 20. apríl var þessi stjórnin endurkjörin: Jóhann Óli Hilmarsson formaður, aðrir í stjórn Einar Ó. Þorleifsson (varaformarður), Ólafur Karl Nielsen (ritari), Daníel Bergmann (gjaldkeri), Björk Guðjónsdóttir (meðstj.), Jón Hallur Jóhannsson (meðstj.) og Jón S. Ólafsson (meðstj.). Haldnir voru 6 stjórnarfundir á árinu.
Félagið leigði skrifstofu og aðstöðu af Landvernd að Ránargötu 18, í húsi Skógræktarfélags Íslands. Skrifstofan flutti um vorið að Skúlatúni 6.
Félagar töldust vera rétt um 570 í árslok. Félagsgjald var ákveðið kr. 2200 fyrir einstakling, kr. 1700 fyrir unglinga og eldri borgara og kr. 2800 fyrir fjölskyldur.
Stjórn Austurlandsdeildar skipuðu Halldór Walter Stefánsson, formaður Berglind Steina Ingvarsdóttir og Vigfús Hjörtur Jónsson.
FræðslaTveir fræðslufundir voru haldnir á árinu: 3. mars hélt Gísli Már Gíslason erindi um Mývatn og Magnús Magnússon sýndi kvikmynd sína um vatnið. 7. apríl hélt Ævar Petersen erindi um varphætti hrossagauksins í Flatey. Fjórum sinnum var blásið til vettvangsfræðslu eða fuglaskoðunar á árinu:
Garðfuglakönnun hélt sínu striki, en hún fór af stað haustið 1994. Haustið 2005 var því 12. haustið sem þessi skemmtilega könnun fer af stað. Þátttaka var með svipuðu móti, um 20 félagar sendu inn athuganir sínar.
Í Friðlandið í Flóa var göngustígur afmarkaður eins og undanfarin ár. JÓH fór í nokkrar ferðir með hópa um svæðið og hin árlega ferð var 16. júní. Brýrnar, sem smíðaðar höfðu verið sumarið áður, voru settar niður í apríl. Félagar í Björgunarfélagi Eyrarbakka og Fuglavernd unnu að því verki. Brýrnar þóttu hinar ágætustu og auðvelduðu allan umgang um friðalandið. Pokasjóður verslunarinnar styrkir friðlandið.
ArnartalningArnarvarp gekk vel og sáu Kristinn Haukur Skarphéðinsson og Finnur Logi Jóhannsson um arnargæslu og arnarflug. Arnarstofninn 2005 reyndist vera 65 pör og komust 35 ungar á legg
Önnur vöktunFuglavernd stóð að þórshanakönnun og er það í þriðja sinn sem fylgst er með vexti og viðgangi þórshanastofnsins. Verkið er unnið í samráði við Náttúrufræðistofnun og Yann Kolbeinsson og með fulltingi Umhverfisráðuneytis.
Fuglar voru taldir á Vífilsstaðavatni og Urriðavatni fyrir Garðabæ, einnig voru varpfuglar kannaðir við vötnin.
Annað árið af þremur í vöktun á fuglalífi Ástjarnar, fyrir Hafnarfjarðarbæ.
Félagið átti fulltrúa í nefnd um endurheimt votlendis. Fulltrúi félagsins var Einar Ó. Þorleifsson. Svo og í rjúpnanefnd. Fulltrúi þar var Ólafur Einarsson. Rjúpnanefnd var lögð niður á árinu.
Útgáfa
Annað tölublað Fugla kom út um vorið. Ritstjóri var Daníel Bergmann. Bæklingur um garðfugla og nýr bæklingur til að afla félaga komu út í lok árs. Tvö jóla- og tækifæriskort komu út um haustið.
Samstarf við önnur félög og samtök
Félagið tók þátt í Degi umhverfisins í apríl, ásamt frjálsum félagasamtökum.
Samstarfið við RSPB Skotlandi hélt áfram gegnum tengiliðinn Lloyd Austin. Trevor Gunton heimsótti félagið, hann var tengiliður við RSPB í formannstíð Árna Waag.
Samstarfið við BirdLife International var sem fyrr talsvert.
Kæra vegna brots á BernarsamningnumÁfram var unnið að málum, tengdum kærunni, þau voru að mestu á herðum Einars Ó. Þorleifssonar. M.a. var fundað með starfmönnum umhverfisráðuneytis.
Samstarf við UmherfisráðuneytiðNokkrir fundir voru haldnir með ráðherra og/eða starfmönnum ráðuneytisins á árinu, bæði að frumkvæði félagsins (um friðun blesgæsa, Bernarmál) og svo sem hluti af samstarfssamningi ráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka. Einnig var fundað um rjúpnamál. Ráðuneytið styrkti starfsemi Fuglaverndar.
Aðrar athugsemdir og kærurÍ febrúar gerði félagið Athugasemdir vegna breytinga á „villidýralögum“.
Í apríl gerði Fuglavernd athugasemdir vegna fyrirhugaðrar vegagerðar á Melrakkasléttu, svonefnds Norðausturvegar um Hólaheiði. Fuglavernd gerði athugsemdir við mat á umhverfisáhrifum vegar í Reykhólasveit og vegarstæði í Mýrdal, skv. aðalskipulagi. Áskorun var send fulltrúum eigenda og stjórn Hitaveitu Suðurnesja um að leggja línu við Sýrfell á Reykjanesi í jörðu.
Stokkseyri 18. apríl 2005 Jóhann Óli Hilmarsson |









