| Ársskýrsla Fuglaverndar 2006 |
|
| Laugardagur, 14. Apríl 2007 00:00 |
Skýrsla formanns Fuglaverndarfélags Íslands fyrir árið 2006Lögð fram á aðalfundi 14. apríl 2007
Stjórn, aðsetur, félagar
Á aðalfundi 18. apríl var þessi stjórn kjörin: Jóhann Óli Hilmarsson formaður, aðrir í stjórn Einar Ó. Þorleifsson (varaformarður), Ólafur Einarsson (ritari), Daníel Bergmann (gjaldkeri), Jón S. Ólafsson (meðstj.), Jón Baldur Hlíðberg (meðstj.) og Örn Óskarsson (meðstj.). Tveir þeir síðastnefndu voru nýir í stjórn. Haldnir voru 6 stjórnarfundir á árinu. Félagið leigði skrifstofu og aðstöðu að Skúlatúni 6, ásamt Skógræktarfélagi Íslands og Landvernd. Félagar töldust vera rétt um 650 í árslok og hafði þeim fjölgað um 70 eða nærri 15% milli ára. Félagsgjald var ákveðið kr. 2200 fyrir einstakling, kr. 1700 fyrir unglinga og eldri borgara og kr. 2800 fyrir fjölskyldur. Stjórn Austurlandsdeildar skipuðu Halldór Walter Stefánsson, formaður Berglind Steina Ingvarsdóttir og Vigfús Hjörtur Jónsson. Auður Matthíasdóttir starfaði í hlutastarfi á skrifstofunni í október og nóvember. Einar Ó. Þorleifsson vann að sérverkefnum í mánuð um vorið (maí-júní) og síðan frá október til desember 2006.
Minning Stofnandi félagsins, heiðursfélagi og burðarás um árabil, Björn Guðbrandsson, lést um vorið. Félagar votta minningu þessa brautryðjanda virðingu sína. Jafnframt var til moldar borinn í janúar Kjartan G. Magnússon, sem lengi var í stjórn félagsins og lést langt um aldur fram.
FræðslaTveir fræðslufundir voru haldnir á árinu og var mæting á þá báða með ágætum: 11. apríl fjölluðu Ólafur Karl Nielsen og Yann Kolbeinsson um ferð til Kenýa. 9. nóvember fjallaði Einar Ó. Þorleifsson um garðfugla. Fjórum sinnum var blásið til vettvangsfræðslu eða fuglaskoðunar á árinu:
Auk þess var félagið aðili að ferð, sem farin var til Búlgaríu og Rúmeníu um vorið.
Garðfuglakönnun hélt sínu striki, en hún fór af stað haustið 1994. Haustið 2006 var því 13. haustið sem þessi skemmtilega könnun fer af stað. Þátttaka var með svipuðu móti, um 20 félagar sendu inn athuganir sínar. Í Friðlandið í Flóa var göngustígur afmarkaður eins og undanfarin ár. JÓH fór í nokkrar ferðir með hópa um svæðið og tvær auglýstar ferðir voru farnar í lok maí og byrjun júní. Um haustið var hafist handa við að byggja skoðunarskýli í friðlandinu. Ásmundur Gunnlaugsson var fenginn til verksins og BYKÓ veitti hagstæð kjör á efni. Pokasjóður verslunarinnar styrkir friðlandið.
ArnartalningArnarvarp gekk illa og sáu Kristinn Haukur Skarphéðinsson og Finnur Logi Jóhannsson um arnargæslu og arnarflug. Arnarstofninn 2006 reyndist vera 66 pör og komust 35 ungar á legg. Varp í fjórðungi arnarhreiðra misfórst í vor og var þar fyrst og fremst um að kenna kaldri veðráttu í maí. Félagið veitti ungri snót á Grundarfirði viðurkenningu fyrir að bjarga erni úr Kirkjufellslóni. Einnig veitti það Hallgrími Gunnarssyni styrk til kaupa á þremur radíósendum til að setja á arnarunga.
Önnur vöktunVinna við endurskoðun IBA skrár stóð yfir á árinu. Farin var vettvangsferð í Vestur-Skaftafellssýslu um vorið. Meðfram vinnunni voru skráð votlendi, sem hægt væri að endurheimta. Einar Ó. Þorleifsson vann þessa vinnu.
Fuglavernd stóð að þórshanakönnun og er það í þriðja sinn sem fylgst er með vexti og viðgangi þórshanastofnsins. Verkið er unnið í samráði við Náttúrufræðistofnun og Yann Kolbeinsson og með fulltingi Umhverfisráðuneytis.
Fuglar voru taldir á Vífilsstaðavatni og Urriðavatni fyrir Garðabæ, einnig voru varpfuglar kannaðir við vötnin.
Annað árið af þremur í vöktun á fuglalífi Ástjarnar, fyrir Hafnarfjarðarbæ.
Votlendisnefnd, sem Fuglavernd hefur átt aðild að frá upphafi, lauk störfum um vorið með útgáfu vandaðrar skýrslu. Nefndin starfaði frá 1996. Alls var endurheimt á 15 stöðum með fulltingi nefndarinnar, víðast með mjög góðum árangri, flórgoðar nú á tveimur þessara staða og hafa sést á einum til. Votlendisendurheimt hefur nú verið flutt til Landbúnaðarháskólans og hefur Hlynur Óskarsson umsjón með málaflokkinum, en hann hefur verið í ágætu samstarfi við Vegagerðina um þessi mál. Vonir standa til að endurheimt eigi sér stað við Vatnshamravatn hjá Hvanneyri og Miklavatn á Úthéraði á næstunni. Ný votlendisnefnd Fuglaverndar var sett á fót á árinu og fundaði hún tvisvar. Í henni sitja Hlynur Óskarsson, Jón S. Ólafsson, Tómas Gunnarsson og Einar Ó. Þorleifsson.
Útgáfa
Þriðja tölublað Fugla kom út um haustið. Ritstjóri var sem fyrr Daníel Bergmann. Bæklingur um friðun blesgæsar kom út um haustið og átti Fuglavernd aðild að honum. Bæklingur um garðfugla og nýr bæklingur til að afla félaga komu út um áramótin 2005/06. Tvö jóla- og tækifæriskort komu út um haustið.
Samstarf við önnur félög og samtök
Í samráði við önnur náttúruverndarfélög og Umhverfisfræðslutorg, tók Fuglavernd þátt í sýningunni Sumarið 2006. Þótti þátttakan takast mjög vel og skilaði sýningin 8-9% félagaviðbót.
Hugmynd að arnarsetri í samstarfi við Reykhólahrepp og/eða Náttúrustofu Vesturlands/Stykkishólm var rædd, en ekkert hefur verið ákveðið enn.
Samstarfið við RSPB Skotlandi hélt áfram gegnum tengiliðinn Lloyd Austin. Lloyd heimsótti okkur í september. Í tengslum við heimsókn Lloyds hófst á ný vinna við stefnumörkun félagsins, sem hafði legið niðri um hríð.
Samstarfið við BirdLife International var sem fyrr talsvert. Tveir fulltrúar fóru á Evrópufund í Ljúbljana í Slóveníu í október. Áfram var unnið að því að öðlast fulla aðild að BirdLife.
Auk þessa átti Fuglavernd sem fyrr gott samstarf við Náttúruvaktina, Náttúruverndarsamtök Íslands, Landvernd, Skógræktarfélag Íslands, Skotvís og fleiri félög.
Kæra vegna brots á Bernarsamningnum Áfram var unnið að málum, tengdum kærunum tveimur, skógræktarkæru og Kárahnjúkakæru, þau voru að mestu á herðum Einars Ó. Þorleifssonar.
Friðun Blesgæsar Unnið var að friðun blesgæsar frá áramótum og þangað til friðun var staðfest af umhverfisráðherra 15. júní. Það var síðasta verk Sigríðar Önnu Þórðardóttur í starfi, ásamt friðun kúluskítsins í Mývatni. Fuglavernd átti stóran þátt í þessari friðun, í |









