Ársskýrsla Fuglaverndar 2007 Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 08. Apríl 2008 00:00

Skýrsla formanns Fuglaverndarfélags Íslands fyrir árið 2007

Lögð fram á aðalfundi 8. apríl 2007

 

Stjórn, aðsetur, félagar

Á aðalfundi 14. apríl 2007 var þessi stjórn kjörin:  Jóhann Óli Hilmarsson formaður, aðrir í stjórn Einar Ó. Þorleifsson (varaformarður), Ólafur Einarsson (ritari), Daníel Bergmann (gjaldkeri), Hrafn Svavarsson (meðstj.), Jón Baldur Hlíðberg (meðstj.) og Örn Óskarsson (meðstj.).  Hrafn er nýr í stjórn.  Haldnir voru 7 stjórnarfundir á árinu.

Félagið leigði skrifstofu og aðstöðu að Skúlatúni 6, ásamt Skógræktarfélagi Íslands og Landvernd.

Félagar töldust vera rétt um 850 í árslok og hafði þeim fjölgað um 100 milli ára.  Þar voru um 80 sem voru teknir af skrá um áramót, en á eftir að athuga hvort vilja vera áfram félagar.  Auk þess um 30 bókasöfn, skólar o.fl. sem greiða árgjald.  Félagsgjald var ákveðið kr. 2500 fyrir einstakling,  kr. 2000 fyrir unglinga og eldri borgara og kr. 3100 fyrir fjölskyldur.

Stjórn Austurlandsdeildar skipuðu Halldór Walter Stefánsson, formaður Berglind Steina Ingvarsdóttir og Vigfús Hjörtur Jónsson.

Einar Ó. Þorleifsson vann að sérverkefnum á útmánuðum, en var fastráðinn í 60% starf sept-des.  Skrifstofan var því mönnuð meira og minna mestan hluta ársins.

 

Fræðsla

Fjórir fræðslufundir voru haldnir á árinu og var mæting á þá báða með ágætum:

4. febrúar fjallaði Skarphéðinn Guðmundur Þórisson um fugla og mannlíf í Malawí.

22. mars talaði Tómas Grétar Gunnarsson um Íslenska mófugla, vistfræði og vernd.

11. október kynnti Brynjúlfur Brynjólfsson Fuglaathugunarstöð Suðausturlands.

8. nóvember flutti Guðmundar Alfreð Guðmundsson erindi um Heimskautalöndin unaðslegu.

Einar Ó. Þorleifsson fór í fyrirlestraferð í marz með erindið Fuglarnir í garðinum.  Hann tróð upp á Höfn, Djúpavogi og Egilsstöðum.

 

Fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa var haldin 9. og 10. júní.

 

Garðfuglakönnun hélt sínu striki, en hún fór af stað haustið 1994.  Haustið 2006 var því 13. haustið sem þessi skemmtilega könnun fer af stað.  Þátttaka var með svipuðu móti, um 20 félagar sendu inn athuganir sínar.  Garðfuglaskoðun var haldin helgina 27.-28. janúar.

 

Fuglavernd tók þátt í sýningunni Sumarið 2007 í Fífunni í Kópavogi dagana 20.-22. apríl.

 

Friðlandið

Göngustígur afmarkaður eins og undanfarin ár.  JÓH fór í nokkrar ferðir með hópa um svæðið og tvær auglýstar ferðir voru farnar í júní. Bygging fuglaskoðunarskýlis er langt kominn, aðallega á eftir að setja í glugga og hurð.  Ásmundur Gunnlaugsson var fenginn til verksins og BYKÓ veitti hagstæð kjör á efni.  Pokasjóður verslunarinnar styrkir friðlandið.

 

Unnið var að endurskoðun samnings milli sveitarfélagsins (Vestur-Flóa) og Fuglaverndar um friðlandið.  Málið er nú hjá bæjarritara.  Samstarfsnefnd sveitarfélagsins og Fuglaverndar starfaði á árinu.

 

Arnartalning

Arnarvarp gekk illa og sáu Kristinn Haukur Skarphéðinsson og Finnur Logi Jóhannsson um arnargæslu og arnarflug.  Arnarstofninn 2007 reyndist vera 66 pör og komust 35 ungar á legg.  Varp í fjórðungi arnarhreiðra misfórst í vor og var þar fyrst og fremst um að kenna kaldri veðráttu í maí.

Önnur vöktun

EÓÞ vann við endurskoðun IBA skrár.  Nokkrir félagar hófu vöktun á varpi og varpárangri himbrima og leiddu Ólafur Einarsson og Örn Óskarsson verkið.

 

Lokaárið af þremur í vöktun á fuglalífi Ástjarnar, fyrir Hafnarfjarðarbæ.

 

Útgáfa

Fjórða tölublað Fugla kom út í desember.  Ritstjóri var sem fyrr Daníel Bergmann.

Garðfuglabæklingur var endurskoðaður og endurútgefinn.  Pokasjóður styrkti útgáfuna.

Bæklingur um friðun blesgæsar var endurútgefinn.  Honum var dreift víða á slóðum blesgæsarinnar.

 

Samstarf við önnur félög og samtök

Hugmynd að arnarsetri í samstarfi við Reykhólahrepp og/eða Náttúrustofu Vesturlands/Stykkishólm var rædd, en ekkert hefur verið ákveðið enn.

Verkefninu Fuglaskógurinn var ýtt af stokkunum í samstarfi við Skógræktarfélag Íslands.  Þetta er þriggja ára verkefni, sem Einar Ó. Þorleifsson hefur umsjón með.  Verkefnið felst m.a. í því að gera skóga fuglavænni, hengja upp varpkassa, fóðrun o.fl.

Norrænt samstarf var nokkuð á árinu og fór formaður á samnorrænan fund í Stokkhólmi í lok janúar.

Samstarfið við BirdLife International var sem fyrr talsvert.  Áfram var unnið að því að öðlast fulla aðild að BirdLife.

 

Auk þessa átti Fuglavernd sem fyrr gott samstarf við Náttúruvaktina, Náttúruverndarsamtök Íslands, Landvernd, Skógræktarfélag Íslands, Skotvís og fleiri félög.

 

Kæra vegna brots á Bernarsamningnum

Áfram var unnið að málum, tengdum kærunum tveimur, skógræktarkæru og Kárahnjúkakæru,  þau voru að mestu á herðum Einars Ó. Þorleifssonar.

 

Samstarf við Umherfisráðuneytið

Nokkrir fundir voru haldnir með ráðherra og/eða starfmönnum ráðuneytisins á árinu, bæði að frumkvæði félagsins (m.a. um rjúpur og sílamáfa) og svo sem hluti af samstarfssamningi ráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka.  Ráðuneytið styrkti starfsemi Fuglaverndar, eins og fram kemur í reikningum félagsins.

 

Aðrar athugsemdir og kærur

Í febrúar voru gerðar athugasemdir við frumvarp um Vatnajökulsþjóðgarð.

Í apríl var leyfi til notkunar svefnlyfja við dráp á sílamáfum mótmælt og leyfisveitingin síðan kærð til ráðherra í maí.

Í júní var kært vegna matsskylduákvörðunar Skipulagsstofnunnar vegna virkjunar við Hnútu í Hverfisfljóti, Fljótshverfi og í september voru gerðar athugasemdir vegna umsagna um sömu framkvæmd.  Hún þarf nú að fara í umhverfismat.

Í september gerði Fuglavernd athugsemdir við veiðitíma rjúpu.

 

Í október voru gerðar athugasemdir vegna fyrirhugaðrar sumarhúsabyggðar í Skálholti.

 

Fyrirhuguð vegagerð með brúargerð yfir Gufufjörð og Djúpafjörð ásamt eyðileggingu Teigsskógar, hefur verið félaginu þyrnir í augum enda svæðið innan friðlands, IBA svæði og mikilvægt búsvæði margra fugla og má þar sérstaklega nefna haförn.  Félagið á í málferlum til að hrinda ákvörðun þáverandi umhverfisráðherra Jónínu Bjartmarz, ásamt landeigendum og Náttúruverndarsamtökum Íslands.  Málið fer fyrir dóm í vor.  Fuglavernd hefur bent á betri vegagerðarkost með jarðgöngum, sem er ódýrari og styttri og veldur mun minni umhverfisspjöllum.

 

Stokkseyri 8. apríl 2008

Jóhann Óli Hilmarsson