Ársskýrsla Fuglaverndar 2008 Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 18. Apríl 2009 00:00

Ársskýrsla Fuglaverndar 2008

Eins og undanfarin ár hefur stjórn Fuglaverndar lagt áherslu á að fjölga félögum enda er fjölmennara félag lykill að fjölbreyttari starfsemi og sterkari fjárhag. Fjöldi félaga í Fuglavernd um áramót var 908 (er nú 954) og var 24% aukning á árinu.

Stjórn starfsársins var kosin á aðalfundi þann 8. apríl 2008 og skipti hún með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi á þennan hátt:

Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar; Einar Ó. Þorleifsson, varaformaður; Daníel Bergmann, gjaldkeri; Yann Kolbeinsson ritari, Edward B. Rickson, Hrafn Svavarsson og Vigfús Eyjólfsson meðstjórnendur.

Aðalfundur ákvað óbreytt árgjöld á starfsárinu.

Stjórnarfundir voru haldnir 6 sinnum á árinu; 15. febrúar, 18. mars, 19. apríl, 17. september, 18. nóvember og 9. desember 2008.

Rekstur

Skrifstofa
Fuglavernd leigði skrifstofuaðstöðu af Landvernd í Skúlatúni 6 þar sem Skógræktarfélag Íslands er einnig til húsa. Einar Ó. Þorleifsson starfaði fyrir félagið árið 2008 í um 50% starfshlutfalli. Sinnti hann ýmsum sérverkefnum ásamt því að skipuleggja og halda utan um sýningar, atburði og fyrirlestra og sjá jafnframt um kynningarstarf félagsins.

Fjárhagur
Tekjur félagsins jukust nokkuð árið 2008 og námu 5,1 milljón. Vegur þar þyngst aukning félaga og samfara aukning árgjalda. Rekstrarkostnaður jókst á móti og nam 5,6 milljónum. Rekstrarhalli ársins var því 500 þúsund. Til að vega upp á móti hallanum var gengið á eigið fé félagsins og nam það 1,5 milljónum við upphafið á nýju efnahagsári.

Athugasemdir og kærur

Hinn 12. febrúar gerði Fuglavernd athugasemdir til Umhverfisráðuneytis vegna hugsanlegrar virkjunar í Svelgsá í Helgafellssveit og aftur í maí og ágúst.

Aðalfundur Fuglaverndar þann 8. apríl 2008 samþykkti ályktun þar sem harðlega var mótmælt fyrirhugaðri vegalagningu í Gufudalssveit á sunnanverðum Vestfjörðum, þar sem stendur til að leggja veg langsum eftir Teigsskógi, einum stærsta skógi á Vestfjörðum, yfir mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar og nærri tveimur arnarhreiðrum. Stjórnvöld voru hvött til þess að endurskoða þessa vegagerð og velja aðra og náttúruvænni leið í gegnum svæðið, svo sem með jarðgöngum.

Í apríl gerði Fuglavernd athugasemdir við skipulag í Biskupstungum vegna hugmynda um sumarbústaðabyggð í landi Höfða við Hrosshagavík við Tungufljót.

Hinn 5. maí ritaði stjórn félagsins sveitarstjórn Kjósarhrepps bréf, þar sem mótmælt var framræslu við bæina Hurðarbak og Káranes.  Ríkulegt fuglalíf er á tjörnum (sefjum) samnefnum bæjunum, þar sem m.a. válistafuglinn flórgoði verpur.

Sýningar, fyrirlestrar og viðburðir

Óhætt er að fullyrða að sjaldan eða aldrei hafi sýnileiki Fuglaverndar verið meiri en starfsárið 2008–2009. Félagið stóð fyrir ráðstefnu, fjölda fyrirlestra og fjölbreyttu kynningarstarfi.

Fuglaráðstefna
Þann 19. apríl 2008 stóð Fuglavernd fyrir fuglaráðstefnu í samstarfi við Líffræðistofnun Háskólans og Náttúrufræðistofnun Íslands. Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra setti ráðstefnuna og Jan Ejlstedt, framkvæmdastjóri DOF (danska fuglaverndarfélagsins) flutti erindi um alþjóðlega fugla- og búsvæðavernd. Fuglafræðingarnir Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Guðmundur A. Guðmundsson, Freydís Vigfúsdóttir og Tómas G. Gunnarson fluttu síðan erindi um ástand fuglastofna á Íslandi og búsvæði þeirra. Að lokum fjallaði Einar Ó. Þorleifsson um stöðu fuglaverndar á Íslandi en Einar sá jafnframt um skipulagningu og framkvæmd ráðstefnunnar sem var til mikillar prýði.

Sýningar og viðburðir
Fuglavernd var með kynningu á sýningunni Sumar 2008 í Fífunni í Kópavogi dagana 4.-6. apríl.  Jafnframt á tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur sem haldnir voru um sumarið til að vekja athygli á náttúruvernd, þá stóð Einar Ó. Þorleifsson starfsmaður félagsins vaktina fyrir félagið á kynningarhelgi í Hafnarfirði um fuglagarðinn í samstarfi við Skógræktarfélag Hafnafjarðar og Fuglavernd var í desember 2008 með kynningar- og sölubás á jólamarkaði Skógræktarfélags Reykjavíkur.  Félagið tók þátt í sýningu með kynningarbásum í Perlunni fyrir náttúruverndarfélög í boði Umhverfisráðuneytisins.

Fræðslufundir
Haldnir voru 5 fræðslufundir á árinu: Hinn 27. janúar hélt Jón Einar Jónsson fyrirlestur: Hefur veðurfar áhrif á æðarvarp. Þann 13. mars var Ásta Þorleifsdóttir með myndasýningu um náttúruskoðun í Brazilíu.  Hinn 8. apríl sýndi Jóhann Óli Hilmarsson myndir af mannlífi og fuglum í Óman.  Þann 9. október hélt Björn Arnarson erindi um fuglaskoðunarferð til Kosta Ríka, sýndi myndir og sagði ferðasöguna. Þann 13. nóvember var bókakynning í sal Kaupþings í Borgartúni þar sem Jóhann Óli Hilmarsson sýndi myndir og kynnti bók sína um lundann.

Garðfuglakönnun og garðfuglaskoðun
Garðfuglakönnun veturinn 2008–2009 hófst þann 26. október og var nú haldin í 15. sinn. Könnunin stendur allan veturinn og þátttakendur sem fóðra fugla í görðum sínum skrá jafnframt fuglalífið á tímabilinu. Garðfuglaskoðun er styttri athugun, var hrundið af stað veturinn 2004 og var nú haldin frá 7.–10. mars 2008. Ólafur Einarsson og Örn Óskarsson eru umsjónarmenn þessara viðburða en Ólafur hefur haldið utan um þá frá upphafi.

Heimsþing BirdLife International
Alþjóða fuglaverndarsamtökin BirdLife International héldu heimsþing í Argentínu í september og sótti Einar Ó. Þorleifsson starfsmaður félagsins þingið fyrir hönd Fuglaverndar sem er aðili að samtökunum.  Hann flutti þar erindi um stöðu fuglaverndar á Íslandi.  Á þingingu voru jafnframt haldinn Evrópufundur og fundur norrænna fuglaverndarfélaga.

Útgáfa

Fuglavernd gaf út nýjan kynningarbækling á vordögum, Taktu þátt í Fuglavernd sem leysir eldri bækling af hólmi.

Tímaritið Fuglar kom út í 5. sinn í nóvember en því er einungis dreift til félaga í Fuglavernd og er vandaðasta tímarit um fugla og náttúru sem gefið er út á Íslandi.

Friðlandið í Flóa

Sumarið 2008 var lokið við smíði fuglaskoðunarskýlis í Friðlandinu og er ætlunin að opna það formlega í maí 2009.  Um sumarið var sett af stað vöktun á fuglalífi Friðlandsins.  Í fyrstu atrennu voru vatnafuglar taldir á öllum helstu tjörnum í Friðlandinu í byrjun júní og aftur um mánaðamótin júlí/ágúst.  Jafnframt því voru mófuglar taldir á punktum um miðjan júní.  Skýrsla liggur fyrir um niðurstöður talninganna.  Sem fyrr styrkti Pokasjóður verslunarinnar framkvæmdir í Friðlandinu.

Þann 7. og 14. júní voru skipulagðar fuglaskoðunarferðir um Friðlandið þar sem sérfróðir sáu um leiðsögn.  Jóhann Óli Hilmarsson hafði umsjón með starfinu í Friðlandinu.

Samstarf við Umhverfisráðuneytið

Nokkrir fundir voru haldnir með ráðherra og/eða starfmönnum ráðuneytisins á árinu, bæði að frumkvæði félagsins og svo sem hluti af samstarfssamningi ráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka.  Ráðuneytið styrkti starfsemi Fuglaverndar, eins og fram kemur í ársreikningum félagsins.  Félagið á í fyrsta sinn fulltrúa í undirbúningsnefnd fyrir Umhverfisþing á hausti komandi.

Samstarf við Grasagarðinn í Laugardal

Samstarfsamningur við Grasagarðinn í Laugardal var undirritaður í garðinum í júní. Samningurinn er um ráðgjöf Fuglaverndar um að koma upp fuglagarði í nýjum hluta garðsins sem verið er að hanna, þar sem verða sýnishorn af helstu trjám, runnum og blómum sem laða að sé fugla með fræjum, berjum og skordýrum eða veita skjól og góða hreiðurstaði.  Það verða upplýsingaskilti, fuglafóðrun og hreiðurhús.

Annað samstarf

Fulltrúi félagsins var valinn í desember til að koma á náttúruverndarþingi náttúruverndarfélaga í vor þar sem verða fyrirlestrar og vinnuhópar.  Þingið er hugsað til að auka samstarf náttúruverndarfélagana og láta rödd þeirra heyrast hærra í framtíðinni.  Ráðgert er að þingið verði á laugardegi í maí 2009 en síðan verði slíkt þing haldið annaðhvort ár

Sérverkefni

Fuglaskógurinn
Varphús fyrir fugla voru smíðuð og sett upp á nokkrum skógræktarsvæðum um landið í samstarfi við Skógræktarfélag Íslands og með styrk frá Umhverfisráðuneytinu. Einar Ó. Þorleifsson er verkefnisstjóri þessa verkefnis.

Fyrirlestraröð
Einar Ó. Þorleifsson fór um landið og hélt fyrirlestra um garðfugla.  Umhverfisráðuneytið styrkti verkefnið.  Umverfisráðuneytið styrkti verkefnið.  Hann hélt einnig fjölda fyrirlestra í skólum í samstarfi við Náttúruskóla Reykjavíkur.

Fuglahljóð
Yann Kolbeinsson hóf að taka upp og safna fuglahljóðum fyrir væntanlega útgáfu slíkra hljóða. Styrkur fékkst frá Umverfisráðuneytinu í verkefnið.