Ársskýrsla Fuglaverndar 2010 Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 23. Mars 2011 11:17

Ársskýrsla Fuglaverndar 2010

Lögð fram á aðalfundi 22. mars 2011

Stjórn starfsársins var kosin á aðalfundi þann 8. mars 2010 og skipti hún með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi á þennan hátt:

Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar; Jakob Sigurðsson,varaformaður; Hrafn Svavarsson, ritari, Daníel Bergmann, gjaldkeri; Ásgerður Einarsdóttir, Hjálmar A. Jónsson og Rannveig Thoroddsen meðstjórnendur.

Aðalfundur ákvað óbreytt árgjald á starfsárinu.

Stjórnarfundir voru haldnir 7 sinnum á árinu: 11. janúar, 14. mars, 29.apríl, 18. ágúst, 28. september  25. október og 30. nóvember.

Fjölgun félaga nam 11% á árinu, miðað við greiðandi félaga.  Félagatalan er nú komin upp í 1102, þar af 92 með fjölskylduaðild, 148 eldri borgarar og 21 ungliði.

Rekstur

Skrifstofa
Fuglavernd leigir skrifstofuaðstöðu af Landvernd í Skúlatúni 6 þar sem Skógræktarfélag Íslands er einnig til húsa.  Framkvæmdastjóri félagsins er Hólmfríður Arnardóttir, hún var í hálfu starfi til 15. mars þegar hún var ráðin í fullt starf.

Fjárhagur
Tekjur félagsins árið 2010 nam rúmum sjö milljónum,- að fjármagnstekjum undanskildum . Breyting á einstökum tekjuliðum á milli ára var mest í útgáfustarfsemi en tekjur af sölustarfsemi og tengdum liðum fór úr tæpum 500.000 í kr. 1.028.378.

Arfur Hjálmars R. Bárðarsonar stendur nú í rúmum 20 milljónum, en féð hefur verið lagt inná reikning með hæstu ávöxtun og hefur staðið þar óhreyft.

Athugasemdir og kærur

Í janúar sendi félagið inn athugasemdir við lög um náttúruvernd frá 1999 nr. 44. og athugasemdir við aðalskipulag Mýrdalshrepps.

Í lok júní sendi félagið athugasemdir við tillögu að aðalskipulagi Skaftárshrepps 2010-2022.

Í september sendi félagið inn athugasemdir við aðalskipulag í Sandgerðisbæjar 2008-2024.

Í október sendi félagið inn athugasemdir við lög frá 1994, nr. 64 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og jafnframt skoraði félagið á umhverfisráðherra að banna vetrarveiði á gæs og takmarka veiði eða friða sjófugla vegna fækkunar.  Áskorunni var fylgt eftir með fundi og skriflegum röksemdarflutningi.

Sýningar, fyrirlestrar og viðburðir

Fræðslufundir
Fræðslufundir voru haldnir í hinum ágæta sal Arion-banka (sem skipti ekki um nafn á árinu) við Borgartún.  Þeir voru fimm á árinu. Á fundunum bauð Fuglavernd uppá varning sinn til sölu og voru þeir allir vel sóttir.

Á fyrsta fræðslufundi ársins, 15. febrúar, hélt Sigurður Ægisson, þjóðfræðingur, fuglaáhugamaður og prestur m.m. erindi um fugla í íslenskri þjóðtrú.  Þann 26. mars hélt Guðmundur A. Guðmundsson dýravistfræðingur erindi um fuglamerkingar fyrr og nú.

Vetrarstarfið hófst 28. september með myndasýningunni „Fagur er fuglinn“  Þar sýndu fjórir meðlimir svokallaðs S-hóps, hverra nöfn hefjast öll á S, fuglaljósmyndir.  Hinn 9. nóvember hélt Janus Hansen, líffræðingur og fyrrverandi formaður Føroya Fuglafrøðifélags erindi um færeyska fugla.  Þann 30. nóvember endaði Tómas Grétar Gunnarsson vistfræðingur fundadagskrá ársins með erindi um tengsl atferlis og stofna.

Fuglaskoðun

Fuglavernd stóð fyrir vettvangsfræðslu og fuglaskoðunarferðum á árinu, bæði á eigin vegum og í samstarfi við aðra.  Fuglaskoðun var í Friðlandinu í Flóa, við Reykjavíkurtjörn á Degi umhverfisins, í Grafarvogi í samvinnu við Fjallahjólaklúbbinn, við Elliðavatn á Alþjóða farfugladeginum 8. maí, á deginum „Börn og fuglar“ á Seltjarnarnesi 3. júlí og í Fossvogskirkjugarði 31. október, svo nokkuð sé nefnt.

 

Garðfuglakönnun og garðfuglaskoðun
Garðfuglakönnun veturinn 2010-2011 hófst þann 31. október og var nú haldin í 17. sinn. Könnunin stendur allan veturinn og þátttakendur sem fóðra fugla í görðum sínum skrá jafnframt fuglalífið á tímabilinu. Garðfuglahelgi (garðfuglaskoðun) er styttri athugun.  Henni var hrundið af stað veturinn 2004 og var nú haldin frá 29. janúar til 1.febrúar 2010. Ólafur Einarsson og Örn Óskarsson eru umsjónarmenn þessara viðburða en Ólafur hefur haldið utan um garðfuglakönnun frá upphafi.  Þátttaka í Garðfuglahelgi jókst mjög frá fyrra ári. Alls voru fuglar skoðaðir í 264 görðum (329 athugendur) og af þeim sáust fuglar í 243 görðum (92.4%), sem er einnig hærra hlutfall en undanfarin ár.

Markaðir, kynningar.

Að venju tók Fuglavernd þátt í jólamarkaði Skógræktarfélags Reykjavíkur á Elliðavatni og jafnframt í vormarkaði sama stað.  Félagið var einnig með kynningu á vorhátíð Garðheima og það tók þátt í barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar í Gerðubergi í tilefni af Degi umhverfisins.

 

Fundir erlendis
Formaður sótti Evrópusambandið í Brussel heim um haustið, ásamt formönnum eða framkvæmdastjórum þriggja annarra náttúruverndarsamtaka, til að kynnast innviðum sambandsins og taka þátt í námskeiði um náttúruverndarstefnu og löggjöf ESB.  Hann notaði tækifærið og heimsótti Evrópuskrifstofu BirdLife International, sem einmitt er í Brussel.

Útgáfa og miðlun

Tímaritið Fuglar kom út í 7. sinn í desember en því er einungis dreift til félaga í Fuglavernd og er það eitt vandaðasta tímarit um fugla og náttúru sem gefið er út á Íslandi.  Ritstjóri var sem fyrr Daníel Bergmann.

Nýr Friðlandsbæklingur kom út á árinu, sá þriðji sem kemur út um Friðlandið.  Hann var prentaður bæði á íslensku og ensku, en enn er nóg eftir að þýskri útgáfu bæklings númer tvö.

Fuglavernd gaf út dagatal með fuglamyndum eftir Daníel Bergmann og tvö ný jóla- og tækifæriskort komu út um haustið.

Fugl vikunnar hélt áfram í Fréttablaðinu um sinn, en þegar skrásetjarar lögðust út á vordögum, hættu skrifin og voru ekki endurvakin um haustið.

Fésbókarsíðu var ýtt af stokkunum í byrjun árs 2010 – og eru áhangendur hennar nú orðnir 1420 en þar eru birtir ýmsir fróðleiksmolar um fugla og fuglalíf landsins ásamt tilkynningum um atburði félagsins.

 

Friðlandið í Flóa

Vinna hélt áfram í Friðlandinu við að búa í haginn fyrir fólk og fugla.  Á degi umhverfisins 25. apríl undirrituðu bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar, Ragnheiður Hergeirsdóttir og formaður Fuglaverndar, nýjan samning um Friðlandið, sem kom í stað samnings frá 1997.  Smíði fuglaskoðunarhússin lauk eiginlega ekki fyrr en um haustið, þegar settar voru upp hillur undir skoðunarglugga, hjólastólarampur smíðaður frá bílastæði að húsinu og húsið gert endanlega vatnshelt.  Það verk unnu smiðir frá orgelverkstæði Björgvins Tómassonar á Stokkseyri.

Sveitarfélagið lagfærði veginn frá Eyrarbakkavegi að fuglaskoðunarhúsinu í Stakkholti.  Styrkur fékkst frá Auðlind, náttúrusjóði, til að fylla uppí 730 m. langan skurð sem var meðfram veginum að skoðunarhúsinu í Stakkholti.  Skurðruðningurinn (uppgröfturinn) setti ljótan svip á útsýni til norðurs frá veginum, nú nýtur hin marflata ásýnd Friðlandsins sín miklu betur.

Sjálfboðaliðar frá samtökunum Seeds unnu í Friðlandinu í viku í ágúst.  Þeir sléttu, jöfnuðu og sáðu í landið kringum skoðunarhúsið, máluðu það allt að utan, plöntuðu trjám og tyrfðu bakka nýju tjarnarinnar og fleira sem til féll.

Arna Ösp Magnúsardóttir var ráðin af sveitarfélaginu til starfa í Friðlandinu í tvo mánuði í sumar.  Hún var til staðar í skýlinu, gerði viðhorfskönnun meðal gesta Friðlandsins, sinnti verkstjórn yfir sjálfboðaliðum ásamt undirrituðum og öðrum verkum sem þurfti að sinna.  Viðhorfskönnunin mun nýtast aðstandendum Friðlandsins við allt skipulag í framtíðinni.

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir sótti Friðlandið heim ásamt manni sínum í lok maí í tilefni af ári líffræðilegs fjölbreytileika.  Dvöldu þau hjónin drjúgan tíma á svæðinu og síðan var snæddur kvöldverður í Rauða húsinu á Eyrarbakka.  Meðal þeirra sem tóku á móti þeim var Jón Hjartarson, forseti bæjarstjórnar, en þetta var hans síðasta embættisverk, kosningar voru tveimur dögum síðar.  Svandís hafði orð á því að það ætti að skilda alla þingmenn til að eyða nokkrum gemsalausum klukkustundum í Friðlandinu, þar gleymdu menn stund og stað í faðmi náttúru og fugla.

Formaður kynnti Friðlandið á ráðstefnunni „Endurheimt votlendis – hvað þarf til?“, sem haldin var á Hvanneyri 12. maí.

Samstarf við Umhverfisráðuneytið

Nokkrir fundir voru haldnir með ráðherra og/eða starfmönnum ráðuneytisins á árinu, bæði að frumkvæði félagsins og svo sem hluti af samstarfssamningi ráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka.  Framkvæmdastjóri félagsins situr í nefnd um endurskoðun villidýralaganna svokölluðu nr.64 frá 1994:Lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Ráðuneytið styrkti starfsemi Fuglaverndar, eins og fram kemur í ársreikningum félagsins.

Sérverkefni

Himbrimavöktun

Fuglavernd stendur fyrir vöktun á himbrima á völdum vötnum víða um land.  Ólafur Einarsson og Örn Óskarsson eru í forsvari fyrir verkefninu.

 

Jóhann Óli Hilmarsson
formaður Fuglaverndarfélags Íslands