Fræðslufundur um fugla í íslenskri þjóðtrú
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Mánudagur, 15. Febrúar 2010 09:32
Miðvikudaginn 17. febrúar verður fimmti fræðslufundur vetrarins. Þá ætlar Sigurður Ægisson að flytja í máli og myndum erindi um fugla í íslenskri þjóðtrú og einnig mun hann koma inná önnur svið sem tengjast þjóðtrúnni, svo sem alþýðuheiti fugla. Sigurður er guðfræðingur og þjóðfræðingur að mennt og hefur um langt ára bil safnað heimildum um íslensku varpfuglana í menningarsögunni. Í erindi sínu mun hann fjalla um þetta áhugamál sitt, einkum það sem lýtur að hlut þjóðtrúarinnar og mun hann leiða viðstadda inn í þennan mjög svo athyglisverða heim.   

Fundurinn byrjar kl. 20:30 og er haldinn í húsakynnum Aríons banka í Borgartúni 19. Fundurinn eru öllum opinn svo lengi sem húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en aðgangseyrir er 300 krónur fyrir aðra.  Hér á síðu félagsins um fræðslufundi má finna frekari upplýsingar.