|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Miðvikudagur, 01. Febrúar 2012 11:39 |
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Norræna húsinu miðvikudaginn 21. mars 2012 kl. 17:00. Frestur til að skila inn framboðum til stjórnarkjörs rennur út 14. febrúar n.k.. Á hverju ári ganga þrír úr stjórn félagsins og annaðhvort ár gengur formaður úr stjórn. Í ár eru þrjú sæti laus. Við óskum hér með eftir framboðum í stjórn Fuglaverndar.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins skulu berast stjórn í síðasta lagi 15. febrúar. Framboðum og breytingartillögum skal skilað með tölvupósti eða bréfleiðis til stjórnar. Tölvupóstfang formannsins er
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og félagsins er
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Heimilisfang félagsins er Skúlatún 6, 105 Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar skal samkvæmt samþykktum félagsins vera sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu almanaksári. 2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins. 3. Breytingar á samþykktum félagsins samkvæmt 8 gr. 4. Kosin stjórn samkæmt 5 gr. samþykkta félagsins. 5. Kosinn skoðunarmaður félagsreikninga og einn til vara. 6. Ákvörðun árgjalds. 7. Önnur mál. |
|
|
Fugl vikunnar er Sílamáfur – „Vorboðinn hrjúfi“ |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Fimmtudagur, 15. Apríl 2010 16:10 |
Meðal fyrstu farfugla er sílamáfurinn sem hefur fyrir vikið fengið viðurnefnið „vorboðinn hrjúfi“. Fyrstu fuglarnir sjást venjulega kringum mánaðamótin febrúar – mars þó aðalkomutími hans sé í apríl. Sílamáfurinn er eini máfurinn sem er alger farfugl. Hann yfirgefur landið á haustin og dvelur við strendur Pírendaskaga og NV-Afríku á veturna.
Sílamáfur er nýr landnemi á Íslandi og fór að verpa hér að staðaldri á þriðja áratugi 20. aldarinnar, fyrst á S- og SV-landi en nú finnst hann um allt land og fer honum fjölgandi, sums staðar á kostnað svartbaks að því er virðist. Sílamáfur líkist svartbaki en er allmiklu minni og nettari. Fullorðinn sílamáfur er dökkgrár á baki og yfirvængjum með áberandi dekkri vængbrodda, svarta með hvítum doppum, svartbakur er alsvartur á baki. Fætur sílamáfs eru gulir en svartbaks bleikir. Sílamáfurinn verpur í mólendi og graslendi, á áreyrum, holtum, söndum og uppi á fjöllum, oftast við ströndina en einnig inn til landsins, stundum í félagsskap við svartbak. Hreiðrið er gert úr mosa, sinu og öðrum gróðri, oft staðsett milli steina eða þúfna. Stærsta sílamáfsvarp landsins er á Rosmhvalanesi aðallega innan „verndarsvæðis“ Keflavíkurflugvallar. Sílamáfurinn er stundum illa þokkaður, hann sækir t.d. inní þéttbýli og gerir sig heimakominn við grill og aðrar matarholur. Sömuleiðis eru brauðgjafir við Reykjavíkurtjörn vinsælar. Hann veit ekki að brauðið er ætlað öndunum en ekki honum. Þetta hefur verið sérstaklega áberandi í sílaskorti síðustu ára þegar hungrið hefur gert illilega vart við sig en sandsíli er mikilvæg fæða fyrir sílamáfinn. |
|
Fugl vikunnar er álft. Fagurt syngur svanurinn. |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Þriðjudagur, 16. Mars 2010 11:33 |
Hið stórkostlega far fuglanna til landsins er hafið og fyrstu farfuglarnir hafa verið að sýna sig síðustu daga. Álftin er með fyrstu farfuglum, þær fyrstu sáust á SA-landi 8. mars sem er tveimur dögum síðar en meðalkomutími áranna 1998-2009. Nokkur hundruð álftir hafa þó vetursetu, aðallega á Suður og Suðvesturlandi og Mývatni. Á Reykjavíkurtjörn eru venjulega nokkrir tugir. Álftin er stærsti varpfugl landsins. Hún er eini innlendi svanurinn og auðþekkjanleg frá öðrum íslenskum fuglum á stærð, lit og löngum hálsi. Kynin eru eins í útliti, þó karlinn sé ívið stærri. Flugið er kröftugt með sterklegum hægum vængjatökum. Álftin teygir hálsinn beint fram á flugi en heldur honum lóðréttum á sundi. Hún hleypur á vatni þegar hún hefur sig til flugs. Hún leitar ætis bæði á þurru landi og vatni og hálfkafar þá oft með afturendann upp í loft. Álftin er félagslynd, er venjulega í hópum nema á varptíma en þá verja hjónin óðal. Eins og aðrir andfuglar fella álftir flugfjaðrir síðsumars, eru þá ófleygar um tíma og er þá sagt að þær séu „í sárum“. Álftin verpur um land allt. Geldfugla-, far- og fellihópar eru víða, sá stærsti þeirra í Lóni í A-Skaftafellssýslu en þar má stundum sjá meira en þriðjung alls íslenska stofnsins og er það mikilvægasti álftasamkomustaður í heimi. Flestar álftir fljúga héðan til Bretlandseyja á haustin, aðallega til Írlands. |
|
|
Garðfuglahelgi framundan - gott er að hefja undirbúning fyrr... |
|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Miðvikudagur, 18. Janúar 2012 15:54 |
|
Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 27. - 30. jan. 2012. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í klukkutíma föstudaginn 27. jan., laugardaginn 28. jan., sunnudaginn 29. jan. eða mánudaginn 30. jan. Skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir. 
Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra er hægt að finna á vefsíðum um "fóðrun" og í Garðfuglabæklingi Fuglaverndar sem má fá á skrifstofu félagsins.
Að lokinni athugun skal skrá niðurstöður með því að fara í krækjuna "skrá niðurstöður" sem er á Garðfuglavefnum. Einnig er hægt að sækja þangað þartilgert eyðublað og skrá þar upplýsingar í tölvu og senda á póstfang garðfuglavefsins,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hreinlega í pósti til Fuglaverndar, Skúlatúni 6,105 Rvík.
Þessi gæfi auðnutittlingur situr í lófa ljósmyndarans Arnar Óskarssonar. |
|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Þriðjudagur, 10. Janúar 2012 21:44 |
|

Fuglavernd hvetur alla landsmenn til að fóðra fuglana þessa daga. Sem dæmi um fuglafóður má nefna brauð, epli, fitu, kjötsag, matarafganga handa þröstum, störum og hröfnum, sólblómafræ eða páfagaukafræ handa auðnutittlingum, kurlaður maís og hveitikorn handa snjótittlingunum. Silfurtoppan er hrifnust af eplum og rúsínum. Fita er þó það fóður sem hentar flestum fuglum vel í kuldum því þeir brenna miklu til að halda á sér hita. Gott er að gefa reglulega og hugsa fyrir því að hafa vatn aðgengilegt. Fuglarnir þurfa mest á næringu að halda kvölds og morgna. Ýmsir framandi gestir úr heimi fugla sem hafa lent hér í hrakningum leita oft á staði þar sem fuglum er gefið. Nánari upplýsingar má finna á garðfuglavefnum um fóðrun fugla í görðum. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 31 |