| Sea Eagle 2000 |
| Þriðjudagur, 14. September 2004 00:00 |
|
"Sea Eagle 2000", yfirlitsrit um örninn og verndun hans Nýlega kom út mikið rit á vegum Sænsku náttúruverndarsamtakanna (SNF) er fjallar svo til eingöngu um haförninn frá ýmsum sjónarhornum. Efni þess eru fyrirlestrar sem haldnir voru á ráðstefnu í Björkö í Svíþjóð í september 2000. Þar komu saman sérfræðingar frá um 20 löndum og rætt var um arnarstofna á öllu útbreiðslusvæðinu, frá Grænlandi í vestri til Japans í austri. Tilefnið var að draga saman tiltækar upplýsingar um haförninn á heimsvísu á 30 ára afmæli "Project Sea Eagle" en verkefni sem Svíar hleyptu af stokkunum á sínum tíma til að stuðla að verndun arnarins. Meðal efnis ritinu er grein eftir Kristin Hauk Skarphéðinsson er fjallar um íslenska arnarstofninn, þróun hans og viðkomu á undanförnum áratugum: Sea Eagles in Iceland: population trends and reproduction. Hægt er að panta ritið hjá forlaginu, sjá: http://www.snf.se/snf/english/seaeagle.htm khs |






