banner
Ernir í vanda 2003-2005
Sunnudagur, 06. Mars 2005 00:00

news_feeding
Kristinn Haukur og Þorvaldur hjá Náttúrufræðistofnun
huga að erni sem fannst grútarblautur í okt. 2004.
Mynd: Daníel Bergmann

 

Ernir í vanda

Vorið 2003 náðist örn í Hvalfirði sem merktur hafði verið fjórum árum áður við norðanverðan Faxaflóa. Þessi örn hafði reyndar komist undir mannahendur rúmlega tveimur árum fyrr, þá grútarblautur, en var sleppt nokkru síðar eftir þvott á Náttúrufræðistofnun. Nú var fuglinn því miður of langt leiddur og drapst því á öðrum degi. Betur tókst til með þriggja ára gamlan fugl sem náðist grútarblautur í Selvogi í júlí 2003. Hann braggaðist vel eftir þvott og var þá sleppt. Enn einn grútarblautur fugl náðist í afskekktri eyju í Hvammsfirði í október 2004. Hafði hann komist í selshræ og var orðinn ófleygur. Að búningi að dæma var þetta fugl á fjórða vetri en hann fannst fyrir tilviljun er menn voru að huga að kindum. Þessum fugli var sleppt við Hvammsfjörð nokkrum dögum síðar eftir að grúturinn hefði verið þveginn úr honum. Loks náðist örn á fjórða vetri við Sogið í byrjun janúar 2005. Hafði hann farið úr liði á væng, sennilega eftir að hafa flogið á rafmagnslínu. Örninn var endurhæfður í Húsdýragarðinum er nýtur stuðnings Fálkans vegna verkefnisins “Villt dýr í hremmingum”. Dýralæknar í Víðidal komu fuglinum í liðinn og önnuðust meðferð ásamt starfsliði Húsdýragarðsins í samráði við breskan dýralækni. Margir sáu þennan fugl meðan hann dvaldist í garðinum en honum var sleppt 19. febrúar á sama stað og hann fannst: við Bíldsfell í Grafningi. Örninn var frelsinu feginn og virtist hafa náð sér að fullu; hann tók hraustleg vængjatök og flaug í nokkrum áföngum 2-3 km leið niður að Álftavatni. Lítið senditæki hafði verið fest á eina stélfjöður, svo hægt væri að fylgjast með fuglinum og koma til bjargar ef þörf væri.

Hugað var að erninum ellefu dögum eftir að honum var sleppt og heyrðist strax í sendinum er komið var austur að Sogi. Í ljós kom að örninn sat með þanda vængi til þerris á hraundrýli gegnt Alviðru. Af því mátti ráða að hann hefði nýverið blotnað við veiðar í ánni. Eftir stutta stund flaug fuglinn með kröftugum vængjatökum að ármótum Sogs og Hvítár og settist þar í hraunkanntinn. Órólegar syntu við árbakkann skammt frá en voru óhultar um sinn - konungur fuglanna lá á meltunni.

khs

 

news_assa

Örninn Assa sem fannst við Sogið í janúar 2005
og fékk aðhlynningu í Húsdýragarðinum.
Mynd: Daníel Bergmann