| Arnarvarp gekk vel |
| Skrifað af: Jakob Sigurðsson |
| Mánudagur, 24. Ágúst 2009 09:25 |
|
Arnarungar sem komust á legg í sumar voru 36 og hafa þeir ekki verið fleiri í manna minnum. Íslenski hafarnarstofninn telur nú um 65 pör og urpu 45 þeirra í vor. Varp misfórst hjá 19, þar á meðal hjá parinu sem fylgst var með á vefmyndavél Arnarsetursins. Sjá nánar á vef Náttúrufræðistofnunnar og visir.is. |






