|
Fuglalíf í friðlandinu Votlendisfuglar einkenna friðlandið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalífið er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma. Af andfuglum verpur álft (3-4 hjón), grágæs (tugir), stokkönd, rauðhöfðaönd, urtönd, duggönd, skúfönd og toppönd. Grafandarhreiður hefur fundist, og gargendur og skeiðendur sést á varptíma, en þessar endur eru allar sjaldgæfar hér á landi. Töluvert æðavarp er í Kaldaðarneseyjum í Ölfusi, undan Flógaflsengjum. Lómur verpur víða við tjarnir og í eyjunum. Hettumáfs- og kríuvörp eru á nokkrum stöðum og sækjast endur og mófuglar eftir að verpa í þeim. Stöku kjói, sílamáfur og svartbakur verpa í landinu. Þeir fuglar sem setja mestan svip á votlendið eru mófuglarnir. Þær tegundir sem verpa í mýrunum eru lóuþræll, spói, jaðrakan, hrossagaukur, óðinshani og þúfutittlingur. Heiðlóur verpa á þurrum stöðum. Þéttleiki verpandi lóuþræla hefur hvergi mælst meiri hér á landi og á Flóagaflsengjum og sama má segja um jaðrakan við Kaldaðarnesflugvöll. Þéttleiki óðinshana er og óvenjumikill. Á fartíma vor og haust ber mest á grágæs og blesgæs, öndum eins og rauðhöfða og skúfönd, ýmsum vaðfuglum eins og hrossagauki, svo og steindepli. Ljósmynd af toppönd með unga: © Jóhann Óli Hilmarsson |









