|
Gróður í friðlandinu Gróður mýranna er fjölbreyttur votlendisgróður. Flæðiengjarnar eru vaxnar þroskamikilli gulstör, en í þurrara landi er loðvíðir, gulvíðir, mýrastör og klófífa ríkjandi ásamt ýmsum grastegundum. Flestar tjarnir eru bryddaðar ljósastör og þar vaxa nykrur, reiðingsgras, mari og fleiri tjarnaplöntur. Í mógröfunum við Flóagaflsbæina vaxa brúsakollur, lónsóley og vorbrúða. Á suðurhluta friðlandsins, við Óseyrarnes, ber meira á þurrlendis- og hálfdeigjuplöntum. Þar er geithvönn áberandi, en þar vex líka hrossanál, baunagras, hrafnaklukka, túnvingull o.fl. Tvær fallegar en sjaldgæfar blómaplöntur eru algengar í friðlandinu. Önnur þeirra, stúfa, vex hér og þar um allt friðlandið og einnig í mýrlendinu. Hún er annars aðeins algeng í Mýrdal og undir Eyjafjöllum og vex þar aðallega í grasbrekkum mót suðri. Hin er sjöstjarna, sem er allútbreidd. Þetta er þriðji fundarstaður hennar utan Austurlands, þar sem hún vex víða í skóglendi. Dýralíf í friðlandinu Landselir sjást oft á Ölfusá, sérstaklega á haustin og veturna. Þá halda þeir sig allt upp undir Kaldaðarneseyjar við friðlandið. Minkur er algengur allt árið. Hornsíli er algengt í friðlandinu og silungur og áll er í skurðum og tjörnum. Í Ölfusá er lax og silungur. Smádýralíf er fjölskrúðugt í mýrum og tjörnum. Þar má m.a. finna brunnklukkur, tjarnatítur, rykmý, svo og sérstakar marflær, sem lifa í söltu vatni. Ljósmynd af stúfu: © Jóhann Óli Hilmarsson / Ljósmynd af landsel: © Daníel Bergmann
|








