|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Miðvikudagur, 01. Febrúar 2012 11:39 |
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Norræna húsinu miðvikudaginn 21. mars 2012 kl. 17:00. Frestur til að skila inn framboðum til stjórnarkjörs rennur út 14. febrúar n.k.. Á hverju ári ganga þrír úr stjórn félagsins og annaðhvort ár gengur formaður úr stjórn. Í ár eru þrjú sæti laus. Við óskum hér með eftir framboðum í stjórn Fuglaverndar.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins skulu berast stjórn í síðasta lagi 15. febrúar. Framboðum og breytingartillögum skal skilað með tölvupósti eða bréfleiðis til stjórnar. Tölvupóstfang formannsins er
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og félagsins er
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Heimilisfang félagsins er Skúlatún 6, 105 Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar skal samkvæmt samþykktum félagsins vera sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu almanaksári. 2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins. 3. Breytingar á samþykktum félagsins samkvæmt 8 gr. 4. Kosin stjórn samkæmt 5 gr. samþykkta félagsins. 5. Kosinn skoðunarmaður félagsreikninga og einn til vara. 6. Ákvörðun árgjalds. 7. Önnur mál. |
|
Garðfuglahelgi framundan - gott er að hefja undirbúning fyrr... |
|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Miðvikudagur, 18. Janúar 2012 15:54 |
|
Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 27. - 30. jan. 2012. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í klukkutíma föstudaginn 27. jan., laugardaginn 28. jan., sunnudaginn 29. jan. eða mánudaginn 30. jan. Skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir. 
Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra er hægt að finna á vefsíðum um "fóðrun" og í Garðfuglabæklingi Fuglaverndar sem má fá á skrifstofu félagsins.
Að lokinni athugun skal skrá niðurstöður með því að fara í krækjuna "skrá niðurstöður" sem er á Garðfuglavefnum. Einnig er hægt að sækja þangað þartilgert eyðublað og skrá þar upplýsingar í tölvu og senda á póstfang garðfuglavefsins,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hreinlega í pósti til Fuglaverndar, Skúlatúni 6,105 Rvík.
Þessi gæfi auðnutittlingur situr í lófa ljósmyndarans Arnar Óskarssonar. |
|
Ályktun frá stjórn Fuglaverndar |
|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Fimmtudagur, 12. Janúar 2012 13:46 |
Fuglavernd styður eindregið niðurstöðu meirihluta svartfuglanefndar Umhverfisráðuneytisins.
Veiðar, þar með talin eggjataka, eru ekki sjálfbærar úr stofnum sem ná ekki að viðhalda stofnstærð sinni af einhverjum orsökum, t.d. vegna fæðuskorts. Hrun í varpstofnum margra íslenskra sjófuglastofna er staðreynd. Ástundun veiða úr hnignandi stofnum er siðlaus umgengni við náttúruna, óháð magni veiddra fugla. Veiðibann er eina siðlega viðbragðið við stofnhruni tegunda.
Það hljóta að vera hagsmunir allra sem nýta svartfugla að stofnarnir séu sterkir og sjálfbærir. Öll sérhagsmunavarsla getur spillt tiltrú almennings á siðferði veiðimanna og eru ívilnanir sem þeir krefjast á fyrirkomulagi veiðistjórnunar í fullri andstöðu við varúðarreglu sem leyfir sjófuglum að njóta vafans. Svartfuglar og ekki síst lundi gefa af sér miklar tekjur vegna ferðamanna sem koma til að skoða þessa fugla og þær tekjur hverfa þegar þeir grípa í tómt. Á myndinni má sjá stuttnefjur í bjargi. Varpstofn stuttnefju hefur minnkað um 44% á landsvísu á sl. 25 árum og um 95% á Reykjanesskaga. Ljósm:JÓH. |
|
|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Þriðjudagur, 10. Janúar 2012 21:44 |
|

Fuglavernd hvetur alla landsmenn til að fóðra fuglana þessa daga. Sem dæmi um fuglafóður má nefna brauð, epli, fitu, kjötsag, matarafganga handa þröstum, störum og hröfnum, sólblómafræ eða páfagaukafræ handa auðnutittlingum, kurlaður maís og hveitikorn handa snjótittlingunum. Silfurtoppan er hrifnust af eplum og rúsínum. Fita er þó það fóður sem hentar flestum fuglum vel í kuldum því þeir brenna miklu til að halda á sér hita. Gott er að gefa reglulega og hugsa fyrir því að hafa vatn aðgengilegt. Fuglarnir þurfa mest á næringu að halda kvölds og morgna. Ýmsir framandi gestir úr heimi fugla sem hafa lent hér í hrakningum leita oft á staði þar sem fuglum er gefið. Nánari upplýsingar má finna á garðfuglavefnum um fóðrun fugla í görðum. |
|
Fuglavernd tístir á Twitter |
|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Mánudagur, 09. Janúar 2012 10:48 |
 Nú er Fuglavernd farin að tísta á Twitter - sem mætti segja að sé vel við hæfi en Fuglavernd sárvantar þó áhangendur ;-) https://twitter.com/#!/Fuglavernd Ef þið eruð á Twitter endilega leitið okkur uppi.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 31 |