Fugl vikunnar er skógarþröstur: Vorboðinn ljúfi í kvæði Jónasar
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Miðvikudagur, 12. Maí 2010 10:20


Þessi söngfagri fugl er einkennisfugl íslenskra birkiskóga og garða í þéttbýli. Hann er meðalstór spörfugl, dökkmóbrúnn að ofan, hvítur eða ljósgulur að neðan. Bringa hans er alsett þéttum, dökkum langrákum, kviðurinn er minna rákóttur.  Um leið og skógarþrösturinn kemur til landsins á vorin byrjar karlarnir að syngja og helga sér svæði. Skógarþröstur er félagslyndur utan varptíma og fer þá um í hópum. Hann hoppar oftast jafnfætis á jörðu niðri.


Skógarþröstur verpur í alls konar skóglendi á láglendi. Mesti þéttleikinn er í birkiskógi með ríkulegum undirgróðri, í görðum og ræktuðum skógi. Hreiðrið er karfa, ofin á undirstöðu úr leir, tágum og stönglum, staðsett í tré, gjarnan í barrtré í þéttbýli, á jörðu niðri í kjarri, í skurðbökkum og á byggingum. Verpur iðulega tvisvar til þrisvar sinnum á sumri.  Skógarþrösturinn fer til V-Evrópu á haustin. Mest til Skotlands, Írlands, Frakklands og Pýreneaskaga. Nokkur þúsund þreyja hér þorrann og góuna í þéttbýli.  Þeir sækja gjarnan í garða þar sem fuglum er gefið og er uppáhaldið þeirra epli og perur en þeir sækja einnig í brauð og fitu. Flestir fuglar eru sólgnir í fitu á veturna því hún nýtist þeim vel til að halda á sér hita í mestu kuldum.

Vorboðinn ljúfi! fuglinn trúr sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín!
Heilsaðu einkum ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu;
þröstur minn góður! það er stúlkan mín

Úr: Ég bið að heilsa eftir Jónas Hallgrímsson

 
Votlendisráðstefna - Jóhann Óli mun kynna fuglafriðlandið í Flóa
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 11. Maí 2010 10:57

Á morgun, miðvikukudaginn 12. maí verður haldin ráðstefna um votlendismál í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri frá klukkan 09:00-16:00. Titill ráðstefnunnar er Endurheimt votlendis - hvað þarf til? Ráðstefnan er haldin í tilefni alþjóðlegs árs líffræðilegrar fjölbreytni og í ljósi vaxandi umræðu um mikilvægi votlendis í loftslagsbreytingum en einnig njóta fuglar góðs af. Meðal fyrirlesara er Hans Joosten, prófessor við Greifswaldháskóla í Þýskalandi, sem er virtur sérfræðingur í endurheimt votlendis á alþjóðavettvangi. Votlendi eru algeng landgerð á Íslandi og talsvert hefur verið fjallað um mikilvægi þess að endurheimta röskuð votlendi til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftið og til að efla líffræðilegan fjölbreytileika. Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á að fjalla um möguleika á endurheimt votlendis og hvernig best megi vinna að því verkefni. Jafnframt mun umhverfisráðherra tilkynna um ný votlendissvæði á lista Ramsarsamningsins. Markmið Ramsarsamningsins er að stuðla að verndun og skynsamlegri nýtingu votlendissvæða í heiminum, sérstaklega sem búsvæði fyrir votlendisfugla. Nú eru þrjú votlendissvæði hér á landi á lista samningsins. Það eru Þjórsárver, Mývatn- og Laxársvæðið og Grunnafjörður. Nánari upplýsingar er að finna hér á vef Umhverfisráðuneytis.
 

 
Fuglaskoðun við Elliðavatn laugardaginn 8. maí kl. 14:00
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Mánudagur, 03. Maí 2010 12:39

Laugardaginn 8. maí stendur Fuglavernd fyrir fuglaskoðun við Elliðavatn í tilefni af alþjóðlega farfugla-deginum.
Lagt verður af stað frá Elliðavatns bæ stundvís- lega klukkan 14:00 en þar munum við einnig taka þátt í vormarkaði skógræktar-félags Reykjavíkur.
Þeir Edward Rickson og Gunnlaugur Pétursson munu leiða gönguna. Viljum við minna ykkur á að taka sjónaukann með ykkur en Veðurstofan spáir góðu skyggni og stilltu veðri.

 
Fuglavernd tekur þátt í vormarkaði á Elliðavatni helgina 8.9. maí
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Mánudagur, 03. Maí 2010 11:53
 
Samningur um fuglafriðlandið í Flóa endurnýjaður
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Föstudagur, 30. Apríl 2010 10:29
Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri sveitarfélagsins Árborgar og Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar skrifaðu undir nýjan samning um umsjón og mótun Fuglafriðlands í Flóa á degi umhverfisins þann 25. apríl síðastliðinn. Samningur um samstarf í Fuglafriðlandi var fyrst undirritaður á Eyrarbakka 1997. Fuglafriðlandið er orðið þekkt hjá fuglaskoðurum víðsvegar um heiminn og á sumrin er stöðugur straumur fuglaáhugamanna sem gera sér ferð þangað að njóta fuglanna og umhverfisins. Hafist var handa við gerð fuglaskoðunarskýlis fyrir nokkrum árum og var lokið við það í fyrra. Jóhann Óli vígði formlega skýlið við athöfnina, sem er stórt og glæsilegt. Framtíðaráform fyrir Friðlandið er í mótun og er stefnt að því að bjóða uppá fuglaskoðun fyrir almenning, fuglaljósmyndara og fuglaáhugafólk.  Jafnframt verður haldið áfram að endurheimta votlendi á svæðinu en endurheimtuaðgerðir hófust árið 1997.  Þær hafa tekist mjög vel; fuglalíf hefur tekið kipp á endurheimtu svæðunum og sem dæmi má nefna, að lómavarp hefur margfaldast á þessum tíma.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 3 af 21