|
Garðfuglaskoðun um helgina |
|
Miðvikudagur, 25. Janúar 2006 00:00 |
|
Helgina 28 -29. janúar 2006 stendur Fuglavernd fyrir garðfuglaskoðun, er það í þriðja sinn sem félagið stendur fyrir henni og eru allir hvattir til þess að taka þátt í skoðuninni. Markmiðið með henni er að fá sem flesta til þess að skoða fugla í görðum sínum og vekja áhuga á fuglaskoðun. Fá fólk til þess að fóðra fugla og vekja áhuga á fuglum og töfrum þeirra. Ennfremur er að afla upplýsinga um fugla í görðum landsmanna, hvaða tegundir eru til staðar og hvaða fjölda er þar að finna.
Hér er hægt að sækja eyðublað og frekari upplýsingar fyrir Garðfuglaskoðun 2006. |
|
 Fuglavernd gefur út dagatal með úrvali fuglamynda sem voru á sýningu áhugaljósmyndara sem Fuglavernd stóð fyrir í ár. Hægt er að nálgast dagatalið á skrifstofu Fuglaverndar sem er opin flesta daga fyrir hádegi en dagatalið kostar 2.300,- krónur. Það eru 12 ljósmyndarar sem eiga myndir í dagatalinu en þeir eru; Hrafn Óskarsson, Ómar Runólfsson, Björn Arnarson, Óskar Andri Eiríksson, Sindri Skúlason, Gyða Hennings, Þórir Niels Kjartansson, Skúli Gunnarsson, Einar Guðmann, Rán Magnúsdóttir, Jakob Sigurðsson og Sigurður Ægisson. Forsíðumyndina á formaður félagsins Jóhann Óli Hilmarsson. Dagatalið er í stærð A3 og er því stórt og veglegt. Hægt er að panta dagatalið hér á vefnum. Vinsamlegast fyllið út formið hér fyrir neðan. Við bætist sendingarkostnaður upp á 1.000,- krónur.
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 21 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 21 af 21 |