Fuglaskoðun við Reykjavíkurtjörn
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 20. Apríl 2010 12:40

Álft gerir Usla við Reykjavíkurtjörn

Sunnudaginn 25. apríl næstkomandi, í tilefni af degi umhverfisins og árs líffræðilegrar fjölbreytni, munu sjálfboðaliðar frá Fuglavernd og Félagi umhverfisfræðinga taka að sér leiðsögn kringum Reykjavíkurtjörn og Vatnsmýri. Í boði verður fræðsla um líffræðilega fjölbreytni í og við tjörnina, þar á meðal fuglalíf og gróður.

Lagt verður af stað frá Norræna húsinu kl. 13:00 og 15:00. Þetta verður þægileg ganga full af fróðleik.

 

Hér má sjá dagskrá umhvefisráðuneytis á degi umhverfisins.

 
Uppákoma í friðlandinu á Flóa
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 20. Apríl 2010 11:54

Sunnudaginn 25. apríl, á degi umhverfisins, verðum við með hátíðlega uppákomu ásamt sveitarfélaginu Árborg í fuglafriðlandinu í Flóa. Undirritaður verður nýr samningur um umsjón og uppbyggingu á fuglafriðlandinu og fuglaskoðunarhúsinu sem verður að þessu tilefni formlega tekið í notkun.
Fuglavernd verður með leiðsögn og upplýsingar á staðnum en dagskráin byrjar klukkan 14:00.  Tilvalið tækifæri til að kynna sér svæðið með leiðsögn.
 
Ungir fuglaskoðarar fá eitthvað við sitt hæfi
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 20. Apríl 2010 11:51

 

Laugardaginn 24. apríl ætlum við að taka þátt í barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar. Við verðum með aðstöðu uppí Gerðubergi fyrir fuglasmiðjuna okkar þar sem krakkarnir fá að föndra fuglagrímur innanum fugla og fuglasöng. Til að ýta undir forvitni barnanna þá verður hægt að taka þátt í getraun um fugla og búsvæði þeirra og vegleg verða í boði sem hæfa ungum fuglaskoðurum. Komið endilega við hjá okkur í Gerðubergi á milli 13:00-16:00. Dagskrá hátíðarinnar má finna hér: www.barnamenningarhatid.is.

 

 
Náttúruvernd á krossgötum – vörn og sókn
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Mánudagur, 19. Apríl 2010 15:56

Náttúruverndarþing er haldið til að leiða saman alla þá sem hafa áhuga á umhverfis- og náttúruverndarmálum. Markmiðið er að skapa öflugan grundvöll samstarfs og umræðu
um málefni og baráttuaðferðir.

Dagskráin er tvíþætt og er fyrri hlutinn helgaður þeim verkefnum sem mest hefur borið á í umræðunni að undanförnu en seinni hluti þingsins verður helgaður málstofum
um verkefnin framundan og leiðir til að takast á við þau.

Ólafur Páll Jónsson heimspekingur setur þingið en síðan tekur við ávarp
umhverfisráðherra Svandísar Svavarsdóttur.
Hér má sjá dagskrána í heild sinni.

Allir eru velkomnir en vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Landverndar í síma 552 5242 eða með pósti til Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 
Fuglavernd á vorhátíð Garðheima
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Fimmtudagur, 15. Apríl 2010 16:43

Fuglavernd bauðst tækifæri til að kynna sig og starfsemi sín á vorhátíð Garðheima, laugardaginn 10. apríl. Var boðið vel þegið og stóðu vaktina þau Hulda Björg og Hjálmar fyrir hönd Fuglavernar. Þar var ýmislegt á boðstólum sem Fuglavernd hefur gefið út, svo sem Garðfuglabæklingurinn og dagatalið, kortin og fleira. Einnig var tilboð til  nýrra félaga, þ.e. nýjir félagar fengu bókina hans Daníels Bergmanns að auki.

Það má alveg fullyrða að Fuglavernd hafi fengið góða kynningu á þessari vorhátíð og komu margir við borðið til að skoða það sem gefið hafði verið út af Fuglavernd og eins til að spjalla um fugla, spyrja og leita ráða varðandi garðfugla, hvort sem var um fuglafóður til gjafa á veturna og eins um hegðun hina ýmsu tegunda á sumrin. Það komu fram ábendingar um ýmislegt er varðar það að vera félagi í Fuglavernd, td. hvort það ætti að vera til skírteini sem sýndi að viðkomandi væri félagsmaður, til að sýna  á  viðburðum Fuglaverndar eins og á Fræðslukvöldum. En reynslan frá þessari vorhátíð er jákvæð og má alveg búast við framhaldi á þessari kynningu  á næstu vorhátíð.

Hjálmar A. Jónsson
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 21