Aðalfundur félagsins verður haldinn 8.mars 2010
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Föstudagur, 12. Febrúar 2010 17:04
Það stendur til að halda aðalfund félagsins 8.mars en skv.lögum félagsins rennur út frestur þann 14. febrúar næstkomandi  til að skila framboðum til stjórnarkjörs. Á hverju ári ganga 3 stjórnarmenn úr stjórn félagsins og annaðhvert ár gengur formaður úr stjórn. Í ár ganga 3 úr stjórn en formaður situr áfram. Við óskum hér með eftir framboðum í stjórn Fuglaverndar. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins skulu berast stjórn í síðasta lagi 15. febrúar. Framboðum og breytingartillögum skal skilað með tölvupósti eða bréfleiðis til stjórnar. Póstfang formannsins er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   og heimilisfang félagsins er Skúlatún 6, 105 Reykjavík.
 
Garðfuglabæklingurinn er kominn út
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Miðvikudagur, 03. Febrúar 2010 11:18

Nú eigum við aftur Garðfuglabæklinginn en eins og nafnið gefur til kynna fjallar hann um 
þá fugla sem vænta má í görðum.

Hann er fallega myndskreyttur og inniheldur fróðleik um fuglafóðrun og fuglafæðu,
fuglahús og varp
. Einnig er garðrækt fyrir fugla tekin fyrir og inniheldur bæklingurinn
plöntulista yfir plöntur sem gefa af sér fæðu, skjól og varpstaði.

Bæklingurinn er fáanlegur á skrifstofunni og kostar kr. 500,- og sjálfsagt að senda hann í 
pósti líka.

 
Fuglavernd er komin með síðu á "Facebook" og 900 aðdáendur
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 26. Janúar 2010 21:23
Hér má gerast meðlimur beint fyrir þá sem eru skráðir inn á fésið - Fuglavernd - BirdLife Iceland. Annars má alltaf leita að okkur undir nafni. 
 
Garðfuglaskoðun um næstu helgi og Fuglavernd býður í fuglaskoðun á laugardaginn kemur
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 26. Janúar 2010 14:58

Auðnutittlingur. Ljósmynd Örn ÓskarssonDagana 29. jan.– 1.feb.stendur Fuglavernd fyrir garðfuglaskoðun þar sem landsmenn eru hvattir til að skoða og skrá fjölda og tegundir fugla einn klukkutíma í görðum og þá er átt við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir. Þetta er nú einn af árvissum viðburðum sem félagið stendur fyrir. Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla.

Markmiðið er að afla upplýsinga um hvaða tegundir eru til staðar og fjölda innan tegunda ekki síst á tímum loftlagsbreytinga en einnig er markmið að vekja áhuga á fuglum og töfrum þeirra. Við viljum fá fólk til þess að fóðra fugla sem er uppbyggjandi tómstundargaman og mikil aðstoð við garðfugla í oft harðri lífsbaráttu yfir vetrartímann. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund.

Upplýsingar um fóðrun garðfugla er hægt að finna á vef Fuglaverndar og á Garðfuglavefnum. Á Garðfuglavefnum geta þátttakendur einnig skráð niðurstöður sínar og sent þær inn rafrænt. Einnig verður bráðlega fáanlegur veglegur bæklingur um garðfugla sem hægt verður að nálgast á skrifstofu Fuglaverndar. Umsjónarmenn garðfuglaskoðunarinnar, þeir Ólafur Einarsson (s:8999744) og Örn Óskarsson (s:8469783), veita gjarnan upplýsingar ásamt starfsmanni Fuglaverndar Hólmfríði Arnardóttur.

Af þessu tilefni býður Fuglavernd í fuglaskoðun laugardaginn 30.janúar en við munum hittast á bílastæðinu við Fossvogskirkjugarð kl.tvö - allt lagi að vera vongóður um að sjá einhverja fallega spörfugla þó að janúar sé kannski ekki besti mánuðurinn sérstaklega þegar auð er jörð. En allir eru velkomnir og það er spáð fallegum degi. 

 
Fugl vikunnar er gráþröstur: Frekjudallurinn í garðinum
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 26. Janúar 2010 14:02
Gráðþröstur: Ljósmynd Sigurður Ægisson.Gráþröstur er vetrargestur hér og sækir hann í garða þar sem fuglum er gefið.  Gráþrestir eru sérstaklega sólgnir í epli og perur og er ekki óalgengt að stakir þrestir leggi undir sig heilu garðana og matinn þar og verji fóðrið af mikilli hörku.  Þá hrekja þessir frekjudallar aðra þresti í burtu hvort sem það eru tegundarsystkini, skógarþrestir eða svartþrestir. Þeir skipta sér þó lítið af smærri fuglum og hafa ekkert í starana sem ferðast um í hópum.  Gráþröstur er líkur skógarþresti en töluvert stærri og með lengra stél. Hann er grár á höfði og gumpi, rauðbrúnn á baki og vængjum og gulleitur með dökkum dröfnum á bringu og síðum en ljós á kviði. Stélið er langt og svart.  Hann er algengur haust- og vetrargestur um land allt en mikil áraskipti eru af komum hans. Gráþrestir hafa orpið nokkrum sinnum á síðustu áratugum víða um land.  Hann er skógarfugl og lifir í barrskógabeltinu í Evrópu og Asíu.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 7 af 21