Magnús Magnússon kvikmyndagerðarmaður býður í bíó
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Fimmtudagur, 03. Desember 2009 11:11

FálkiMiðvikudaginn 9. desember býður Magnús Magnússon félögum í Fuglavernd að sjá nýjustu fræðslumynd sína, Í ríki fálkans með Ólafi K. Nielsen. Magnús, Ólafur Karl og Karl Sigtryggsson munu segja frá gerð myndarinnar og svara fyrirspurnum.

Sýningin verður í sal Arion banka, Borgartúni 19 og hefst kl. 20:30.

Myndin Í ríki fálkans með Ólafi K. Nielsen verður til sölu á sýningunni og rennur allur ágóði til Fuglaverndar. Einnig verður hægt að kaupa dagatal Fuglaverndar og tækifæriskort félagsins.

Fundurinn eru öllum opinn svo lengi sem húsrúm leyfir. Athugið að aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en aðgangseyrir er 200 krónur fyrir aðra.

 


 
Dagatal Fuglaverndar
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Miðvikudagur, 25. Nóvember 2009 00:00

Fuglavernd gefur út dagatal með úrvali fuglamynda sem voru á sýningu áhugaljósmyndara sem Fuglavernd stóð fyrir í ár.

Hægt er að nálgast dagatalið á skrifstofu Fuglaverndar
sem er opin flesta daga fyrir hádegi
en dagatalið kostar 2.300,- krónur.

Það eru 12 ljósmyndarar sem eiga myndir í dagatalinu en þeir eru; Hrafn Óskarsson, Ómar Runólfsson, Björn Arnarson, Óskar Andri Eiríksson, Sindri Skúlason, Gyða Hennings, Þórir Niels Kjartansson, Skúli Gunnarsson, Einar Guðmann, Rán Magnúsdóttir, Jakob Sigurðsson og Sigurður Ægisson. Forsíðumyndina á formaður félagsins Jóhann Óli Hilmarsson.

Dagatalið er í stærð A3 og er því stórt og veglegt.

 
Fuglaskoðun í Ecuador - fræðslufundur 10. nóvember 2009
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Miðvikudagur, 04. Nóvember 2009 10:36

SígaunafuglÞriðjudaginn 10. nóvember verður þriðji fræðslufundur vetrarins. Þá mun Yann Kolbeinsson segja frá ferð sinni til Ecuador.

Fundurinn byrjar kl. 20:30 og er haldinn í húsakynnum Kaupþings í Borgartúni 19. Fundurinn eru öllum opinn svo lengi sem húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en aðgangseyrir er 200 krónur fyrir aðra.

Ecuador er fremur lítið land í Suður-Ameríku sem liggur um miðbaug. Mjög fjölbreytt búsvæði og lega landsins, sem er tæplega þrisvar sinnum stærra en Ísland, valda því að yfir 1600 fuglategundir hafa verið skráðar þar. Af búsvæðum má nefna þurrt skóglendi við vesturströnd landsins, regnskóga á vestur- og austurhliðum Andesfjalla, opin svæði ofan trjálínu í Andesfjöllunum sem minna þó nokkuð á Ísland og Amazon skógurinn með sitt fjölbreytta vatnakerfi. Auk hinna fjölmörgu varpfugla landsins er þó nokkur fjöldi farfugla frá Norður Ameríku sem dvelur þarna um veturinn.

Yann Kolbeinsson dvaldi í Ecuador í mánuð síðastliðinn vetur og mun segja frá fuglalífi þessa heillandi Suður Ameríkulands. Yann mun sýna úrval mynda úr ferðinni og segja ferðasögu sína. Hér fyrir ofan má sjá mynd af sígaunafugli sem Yann tók á Ecuador.

 
Garðfuglakönnun veturinn 2009-2010
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Sunnudagur, 25. Október 2009 14:01

Garðfuglakönnun hefst þann 25. október 2009.  Fuglavernd byrjaði með Garðfuglakönnun veturinn 1994-95.  Markmiðið með Garðfuglakönnuninni er sem fyrr að athuga hvaða fuglar sækja í garða, í hve miklu magni og breytingar í tegundasamsetningu yfir vetrarmánuðina, skoða breytileika milli ára og landsvæða.  Árangur í starfi sem þessu veltur að sjálfsögðu á þér félagi góður.

Auðnutittlingur

Nú sem fyrr eru félagar hvattir til þess að taka þátt í Garðfuglakönnun.  Hún er einföld í sniðum og þurfa athugendur a.m.k. að fylgjast með athugunarstaðnum hluta úr degi í hverri viku.  Félagar eru hvattir til þess að senda inn niðurstöður fyrir síðasta vetur ef þeir liggja enn á þeim gögnum. 

Ef niðurstöður eru sendar með pósti þá er utanáskriftin:

Fuglavernd,
Garðfuglakönnun,
Skúlatúni 6,
105 Reykjavík. 

Netfangið er nú: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og einnig er vakin er athygli á nýjum vef um garðfugla.

Félagar eru hvattir til þess að gefa fuglunum, það er skemmtilegt og gagnleg tómstund.  Upplýsingar um fóðrun garðfugla og hvernig standa megi að garðrækt til hagsbóta fyrir fugla má fá í garðfuglabæklingi Fuglaverndar og á vefnum um garðfugla.

Eyðublað garðfuglakönnunarinnar er hér

 
Vestfjarðavegur ekki um Teigsskóg
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Fimmtudagur, 22. Október 2009 22:10

Hæstiréttur hefur ógilt úrskurð Jónínu Bjartmars, fyrrverandi umhverfisráðherra um leyfa vegagerð um Teigsskóg í Reykhólasveit, á sunnanverðum Vestfjörðum.

Landeigendur og náttúruverndarfélög töldu að slík vegagerð myndi hafa í för með gríðarleg óafturkræf umhverfisspjöll í nær ósnortnu umhverfi og höfðuðu því mál til að fá úrskurð ráðherra ógildan.

Dómurinn á vef hæstaréttar.

Frétt um úrskurðinn á mbl.is.

Mörður Árnason bloggar um málið.

Viðbrögð Vegagerðarinnar.


 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 9 af 21