Fuglar og loftslagsbreytingar
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Fimmtudagur, 22. Október 2009 22:04

.

Smellið hér til að lesa pistilinn.

 
Vettvangsferð í Grunnafjörð
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Þriðjudagur, 29. September 2009 21:16

Á laugardaginn, 3. október, efna Landvernd og Græna netið til vettvangs-ferðar í Grunnafjörð að skoða friðland fugla og hugsanlegar vegaframkvæmdir. Ferðin hefst kl. 10 og komið aftur í bæinn síðdegis. Leiðsögumaður er Einar Ó. Þorleifsson en Mörður Árnason gerir grein fyrir framkvæmdahugmyndum og áhrifum þeirra á fuglalíf og náttúrufar.

 

Margæsir © Jóhann Óli Hilmarsson

 

Kannaðar verða fuglaslóðir í Grunnafirði, (Leirárvogi) og Blautósi vestan Akrafjalls. Um er að ræða einstakt fuglasvæði þar sem þúsundir farfugla hafa viðkomu um þetta leyti árs. Vænta má mikils fjölda margæsa. Stærsti tjaldahópur landsins heldur þarna til, og að auki geta ferðalangar búist við að sjá stóra hópa af lóum og ýmsar tegundir vaðfugla.  Ernir og fálkar eru þarna tíðir gestir og nær dagleg sjón.
Grunnafjörður er friðaður og skilgreindur sem Ramsarsvæði og nýtur því alþjóðlegar verndar.  Blautós er einnig friðaður.

Undanfarin ár hafa verið uppi hugmyndir um vegagerð á svæðinu með brú yfir ós Grunnafjarðar. Fyrrverandi umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, féllst ekki á slíkar ráðagerðir í skipulagi sveitarfélaganna við svæðið í ágúst 2007 og varð því ekki úr framkvæmdum en fyrir nokkru kynnti Vegagerðin síðan nýjar tillögur um að leggja hringveginn yfir Grunnafjarðarós. Í ferðinni verður gerð grein fyrir þessum hugmyndum og áhrifum hugsanlegra framkvæmda á fuglalíf og náttúrufar á svæðinu.

Farið verður frá BSÍ á laugardaginn, 3. október kl. 10.00 og er áætlaður komutími til Reykjavíkur aftur milli 16 og 17. Þátttökugjald er 1800 krónur, skráning í netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og í síma 866 9376 (Sigrún) fram á föstudag. 

 
Alþjóðlegur samningur um farfugla
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Þriðjudagur, 15. September 2009 14:33
Mánudaginn 21. september verður annar fræðslufundur vetrarins.
 
Bjarthegrar - © Sergey Dereliev

Á næsta fræðslufundi Fuglaverndar mun Búlgarski fuglafræðingurinn Sergey Dereliev segja frá AEWA í máli og myndum. AEWA er Alþjóðlegur samningur um vernd farfugla og votlendisfugla í Afríku og Evrasíu (African-Eurasian Migratory Waterbird Agreement). Sáttmálinn er í tengslum við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP).
 
Sergey Dereliev er sérfræðingur hjá AEWA og mun hann kynna sáttmálann, markmið og helstu verkefni.
 
AEWA sáttmálinn er afar gagnlegur til verndar farfuglum sem ferðast milli landa og heimsálfa og mundi nýtast vel til verndar íslensku farfuglunum enda hefur það verið markmið Fuglaverndar um ára bil að ísland gerist aðili að sáttmálanum og félagið margrætt það mál við hina ýmsu umhverfisráðherra. Ísland er eitt örfárra Evrópuríkja sem ekki á aðild að sáttmálanum.
 

 
Fyrirlesturinn verður mánudaginn 21. september  í húsakynnum Kaupþings í Borgartúni 19 og hefst fundurinn klukkan 20:30.  Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.

Fræðslufundurinn er öllum opinn og er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en kostar annars 200 kr.
 
 
Granninn í vestri
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Mánudagur, 31. Ágúst 2009 22:37

Fimmtudaginn 3. september verður fyrsti fræðslufundur vetrarins.

Gunnar Þór Hallgrímsson og Jóhann Óli Hilmarsson munu segja frá fuglalífi og mannlífi á Ammassalik svæðinu og við Zackenberg á norðaustur Grænlandi.

 

Kulusuk - Höfundur: Jóhann Óli Hilmarsson
Kulusuk - © Jóhann Óli Hilmarsson
 


Fundarstaður er húsakynni Kaupþings í Borgartúni 19 og hefst klukkan 20:30.

Í nágrenni fjallsins Zackenberg á NA-Grænlandi er starfrækt rannsóknarstöð (Zackenbergstöðin - 74°30'N / 21°00'W) þar sem fram fer viðamikil vöktun á ýmsum náttúrulegum fyrirbærum. Gunnar dvaldi við rannsóknir á sanderlum í nágrenni Zackenberg um hálfsmánaðar skeið í júlí 2009. Hann mun segja frá fuglum og öðrum dýrum sem urðu á vegi hans á þessu svæði auk þess að gera grein fyrir rannsóknum á sanderlum og öðrum fuglum sem stundaðar eru í nágrenni Zackenberg.

Jóhann Óli dvaldi ásamt Edward B. Rickson í nokkra daga í sumar á Ammassalik svæðinu á Austur-Grænlandi. Þeir sigldu með heimamönnum um hafssvæði full af hafís milli Kulusuk og Tasiilaq og gengu þaðan um nágrennið og skráðu og mynduðu fuglalíf og landslag. Tasiilaq er stærsti bærinn á austurströnd Grænlands og vinabær Kópavogs. Jóhann Óli mun sýna úrval af myndum þeirra félaga og segja ferðasögu frá þessum framandi slóðum, sem eru þó svo nærri okkur.

Fyrirlestrar Fuglaverndar
 
Fyrirlestrar í Háskóla Íslands
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Sunnudagur, 16. Ágúst 2009 14:29

Þann 29. ágúst verða haldnir tveir fyrirlestrar um fugla í húsakynnum Háskóla Íslands.Krossnefur

 

Samsvæða tegundamyndun meðal fugla - Sympatric Speciation in Birds

Tímasetning 10:00-11:30

Staðsetning viðburðar:  Askja

Nánari staðsetning:  Stofa 132.

Smellið hér til að lesa nánar um fyrirlesturinn á vef Háskólans

 

Finkur Darwins og þróun - Evolution of Darwin's Finches

Tímasetning 13:00-15:00

Staðsetning viðburðar:  Aðalbygging

Nánari staðsetning:  Hátíðarsalur

Smellið hér til að lesa nánar um fyrirlesturinn á vef Háskólans

Athugið að báðir fyrirlestrarnir verða á ensku.

 

 

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 10 af 21