Fuglaskoðun
Föstudagur, 03. Júlí 2009 01:06

Fuglaskoðun Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Fuglaverndar laugardaginn 27. júní kl. 10:00

Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og Fuglavernd standa fyrir fuglaskoðunarferð um Höfðaskóg og nágrenni á laugardaginn kemur kl. 10.00. Lagt verður af stað frá bækistöðvum Skógræktarfélagsins og Trjáræktarstöðvarinnar Þallar við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Leiðsögumenn verða þaulvanir fuglaskoðarar.

Kynning verður á starfsemi Fuglaverndar og hreiðurkassar fyrir mismunandi tegundir garðfugla boðnir til sölu. Einnig mun Þöll kynna áhugverðan gróður í fuglagarðinn.

Leiðsögumenn verða Steinar Björgvinsson, Jakob Sigurðsson og Edward Rickson

Nánari upplýsingar eru veittar í síma:
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar: 555-6455
Steinar Björgvinsson: 894-1268