Náttúruskoðun í Brasilíu
Fimmtudagur, 13. Mars 2008 00:00

Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur heldur fyrirlestur í Bratta

Storkar

Fuglavernd heldur fyrirlestur þriðjudaginn 18. mars kl. 20.30 í salnum Bratta í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð. Aðgangur er öllum opinn og er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en kostar annars 200 kr.

Ásta segir ferðasögu og sýndar myndir frá Brasilíuferð sumarið 2007

Fenjalandið Pantanal, þar sem fuglar og krókódílar lifa góðu lífi. Pantanal er viðkomustaður milljóna fugla á farflugi eftir Suður-Ameríku. Þar er griðarlegur fjöldi vaðfugla, storka og ránfugla. Sýndar verða myndir frá Cristalíno verndarsvæðinu og Telespirisfljóti sem renna í Amazon en þar eru heimkynni risaeðlufuglsins, arapáfagauka og konungagammsins. Cristalínó er eitt besta svæðið á vatnasvæði Amazon til fuglaskoðunar. Þá verða sýndar myndir frá Amazonánni við Manaus þar sem skoðaðir voru bleikir höfrungar, tarantúlur og letidýr.

Einnig verða sýndar myndir frá eyjunni Fernando do Norunha sem liggur um 300 km undan ströndum Brasilíu og er á heimsminjaskrá sem verndarsvæði sæskjaldbaka og höfrunga sem þar halda til í þúsundatali.