| Hefur veðurfar áhrif á æðarvarp? |
| Sunnudagur, 27. Janúar 2008 00:00 |
|
Jón Einar Jónsson heldur fyrirlestur í Bratta Fuglavernd heldur fræðslufund fimmtudaginn 7. febrúar kl. 20.30 í salnum Bratta í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð. Aðgangur er öllum opinn og er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en kostar annars 200 kr. Jón Einar Jónsson, Háskólasetri Snæfellsness (HÍ) hefur rannsakað andfugla í rúman áratug og vinnur nú að rannsóknum á stofnvistfræði æðarfugls á Íslandi. Verkefnið mun skoða áhrif veðurfars og gæða búsvæða á framtíðarhorfur nýtingar og vistfræði æðarfugls Somateria mollissima. Fjölmargir æðarbændur hafa skráð fjölda hreiðra innan varpsvæða sinna í gegnum árin og lánað þær í verkefnið. Í fyrirlestrinum mun Jón Einar fjalla um verkefnið og lýsa mögulegum áhrifum veðurfars á æðarfugla, hvernig árstíðirnar fjórar hafa áhrif á hegðan og varp æðarfugla og kynna nýjar niðurstöður um fjölda varpfugla, komutíma í varp og hvort að veður hafi einhver áhrif á þessar breytur. Verkefnið tengist áhrifum loftslagbreytinga á fuglastofna. |









