| Heimskautalöndin unaðslegu |
| Þriðjudagur, 30. Október 2007 00:00 |
|
Guðmundur A. Guðmundsson heldur fyrirlestur í Bratta Fuglavernd heldur fræðslufund fimmtudaginn 8. nóvember kl. 20.30 í salnum Bratta í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð. Aðgangur er öllum opinn og er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en kostar annars 200 kr. Guðmundur A. Guðmundsson, Náttúrufræðistofnun Íslands, hefur tekið þátt í fjórum sænskum leiðöngrum á rannsóknarskipum um norðurhjara. Fyrsti leiðangurinn var farinn sumarið 1994 með ströndum Síberíu eftir svokallaðri Norðausturleið. Sumarið 1996 var farið vítt og breit um Norður-Íshafið með viðkomu á Norðurpólnum. Sumarið 1999 lá leiðin eftir Norðvesturleið um heimskautahéruð Kanada allt til Alaska. Loks sumarið 2005 var hringnum lokað með ferð á sænskum ísbrjóti til Beringssunds. Í öllum þessum ferðum unnu Guðmundur og samstarfsmenn að kortlagningu ferða farfugla með hjálp ratsjár. Í fyrirlestrinum mun Guðmundur sýna svipmyndir frá þessum ferðum og fjalla um náttúrufar norðurslóða. |








