|
Áskorun Fuglaverndar vegna fækkunar sjófugla |
|
Skrifað af: Jakob Sigurðsson
|
|
Þriðjudagur, 28. Júlí 2009 21:15 |
|
Þann 5. júlí 2009 sendi Fuglavernd umhverfisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur eftirfarandi áskorun vegna fækkunar sjófugla.
Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir Umhverfisráðuneytinu Skuggasundi 1 Reykjavík Áskorun Fuglaverndar vegna fækkunar sjófugla Í ljósi þess að niðurstöður nýlegra rannsókna benda til þess að mikil fækkun eigi sér nú stað meðal íslenskra sjófuglastofna skorar Fuglaverndarfélag Íslands á umhverfisráherra að grípa nú þegar til ráðstafana til þess að vernda þessa stofna. Á Íslandi eru margir stærstu sjófuglastofnar Evrópu og bera Íslendingar því ábyrgð á velferð þeirra og umgengni við þá, m.a. skv. Bernar-samningnum og Ríó-sáttmálanum. Lagt er til að:
1) Lágmarksgrunnrannsóknum á stofnbreytingum sjófugla verði komið á.
2) Tegundir sem fara á válista vegna fækkunar verði friðaðar fyrir veiðum og eggjatöku.
3) Varpstöðvar þessara tegunda: fuglabjörg og aðrar byggðir, verði friðuð.
4) Vorveiðum á svartfugli verði alfarið hætt.
Stokkseyri 5. júlí 2009 Jóhann Óli Hilmarsson, formaður
|