|
Skrifað af: Jakob Sigurðsson
|
|
Mánudagur, 31. Ágúst 2009 22:37 |
|
Fimmtudaginn 3. september verður fyrsti fræðslufundur vetrarins. Gunnar Þór Hallgrímsson og Jóhann Óli Hilmarsson munu segja frá fuglalífi og mannlífi á Ammassalik svæðinu og við Zackenberg á norðaustur Grænlandi. Kulusuk - © Jóhann Óli Hilmarsson
Fundarstaður er húsakynni Kaupþings í Borgartúni 19 og hefst klukkan 20:30. Í nágrenni fjallsins Zackenberg á NA-Grænlandi er starfrækt rannsóknarstöð (Zackenbergstöðin - 74°30'N / 21°00'W) þar sem fram fer viðamikil vöktun á ýmsum náttúrulegum fyrirbærum. Gunnar dvaldi við rannsóknir á sanderlum í nágrenni Zackenberg um hálfsmánaðar skeið í júlí 2009. Hann mun segja frá fuglum og öðrum dýrum sem urðu á vegi hans á þessu svæði auk þess að gera grein fyrir rannsóknum á sanderlum og öðrum fuglum sem stundaðar eru í nágrenni Zackenberg.
Jóhann Óli dvaldi ásamt Edward B. Rickson í nokkra daga í sumar á Ammassalik svæðinu á Austur-Grænlandi. Þeir sigldu með heimamönnum um hafssvæði full af hafís milli Kulusuk og Tasiilaq og gengu þaðan um nágrennið og skráðu og mynduðu fuglalíf og landslag. Tasiilaq er stærsti bærinn á austurströnd Grænlands og vinabær Kópavogs. Jóhann Óli mun sýna úrval af myndum þeirra félaga og segja ferðasögu frá þessum framandi slóðum, sem eru þó svo nærri okkur. Fyrirlestrar Fuglaverndar
|