Alþjóðlegur samningur um farfugla
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Þriðjudagur, 15. September 2009 14:33
Mánudaginn 21. september verður annar fræðslufundur vetrarins.
 
Bjarthegrar - © Sergey Dereliev

Á næsta fræðslufundi Fuglaverndar mun Búlgarski fuglafræðingurinn Sergey Dereliev segja frá AEWA í máli og myndum. AEWA er Alþjóðlegur samningur um vernd farfugla og votlendisfugla í Afríku og Evrasíu (African-Eurasian Migratory Waterbird Agreement). Sáttmálinn er í tengslum við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP).
 
Sergey Dereliev er sérfræðingur hjá AEWA og mun hann kynna sáttmálann, markmið og helstu verkefni.
 
AEWA sáttmálinn er afar gagnlegur til verndar farfuglum sem ferðast milli landa og heimsálfa og mundi nýtast vel til verndar íslensku farfuglunum enda hefur það verið markmið Fuglaverndar um ára bil að ísland gerist aðili að sáttmálanum og félagið margrætt það mál við hina ýmsu umhverfisráðherra. Ísland er eitt örfárra Evrópuríkja sem ekki á aðild að sáttmálanum.
 

 
Fyrirlesturinn verður mánudaginn 21. september  í húsakynnum Kaupþings í Borgartúni 19 og hefst fundurinn klukkan 20:30.  Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.

Fræðslufundurinn er öllum opinn og er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en kostar annars 200 kr.