| Garðfuglakönnun veturinn 2009-2010 |
| Skrifað af: Jakob Sigurðsson |
| Sunnudagur, 25. Október 2009 14:01 |
|
Garðfuglakönnun hefst þann 25. október 2009. Fuglavernd byrjaði með Garðfuglakönnun veturinn 1994-95. Markmiðið með Garðfuglakönnuninni er sem fyrr að athuga hvaða fuglar sækja í garða, í hve miklu magni og breytingar í tegundasamsetningu yfir vetrarmánuðina, skoða breytileika milli ára og landsvæða. Árangur í starfi sem þessu veltur að sjálfsögðu á þér félagi góður. Nú sem fyrr eru félagar hvattir til þess að taka þátt í Garðfuglakönnun. Hún er einföld í sniðum og þurfa athugendur a.m.k. að fylgjast með athugunarstaðnum hluta úr degi í hverri viku. Félagar eru hvattir til þess að senda inn niðurstöður fyrir síðasta vetur ef þeir liggja enn á þeim gögnum. Ef niðurstöður eru sendar með pósti þá er utanáskriftin: Fuglavernd, Netfangið er nú: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og einnig er vakin er athygli á nýjum vef um garðfugla. Félagar eru hvattir til þess að gefa fuglunum, það er skemmtilegt og gagnleg tómstund. Upplýsingar um fóðrun garðfugla og hvernig standa megi að garðrækt til hagsbóta fyrir fugla má fá í garðfuglabæklingi Fuglaverndar og á vefnum um garðfugla. |








