| Fuglaskoðun í Ecuador - fræðslufundur 10. nóvember 2009 |
| Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir |
| Miðvikudagur, 04. Nóvember 2009 10:36 |
|
Fundurinn byrjar kl. 20:30 og er haldinn í húsakynnum Kaupþings í Borgartúni 19. Fundurinn eru öllum opinn svo lengi sem húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en aðgangseyrir er 200 krónur fyrir aðra. Ecuador er fremur lítið land í Suður-Ameríku sem liggur um miðbaug. Mjög fjölbreytt búsvæði og lega landsins, sem er tæplega þrisvar sinnum stærra en Ísland, valda því að yfir 1600 fuglategundir hafa verið skráðar þar. Af búsvæðum má nefna þurrt skóglendi við vesturströnd landsins, regnskóga á vestur- og austurhliðum Andesfjalla, opin svæði ofan trjálínu í Andesfjöllunum sem minna þó nokkuð á Ísland og Amazon skógurinn með sitt fjölbreytta vatnakerfi. Auk hinna fjölmörgu varpfugla landsins er þó nokkur fjöldi farfugla frá Norður Ameríku sem dvelur þarna um veturinn. Yann Kolbeinsson dvaldi í Ecuador í mánuð síðastliðinn vetur og mun segja frá fuglalífi þessa heillandi Suður Ameríkulands. Yann mun sýna úrval mynda úr ferðinni og segja ferðasögu sína. Hér fyrir ofan má sjá mynd af sígaunafugli sem Yann tók á Ecuador. |







