| Dagatal Fuglaverndar |
| Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir |
| Miðvikudagur, 25. Nóvember 2009 00:00 |
![]() Fuglavernd gefur út dagatal með úrvali fuglamynda sem voru á sýningu áhugaljósmyndara sem Fuglavernd stóð fyrir í ár. Hægt er að nálgast dagatalið á skrifstofu Fuglaverndar Það eru 12 ljósmyndarar sem eiga myndir í dagatalinu en þeir eru; Hrafn Óskarsson, Ómar Runólfsson, Björn Arnarson, Óskar Andri Eiríksson, Sindri Skúlason, Gyða Hennings, Þórir Niels Kjartansson, Skúli Gunnarsson, Einar Guðmann, Rán Magnúsdóttir, Jakob Sigurðsson og Sigurður Ægisson. Forsíðumyndina á formaður félagsins Jóhann Óli Hilmarsson. Dagatalið er í stærð A3 og er því stórt og veglegt. |







