| Fuglar 6 |
| Skrifað af: Jakob Sigurðsson |
| Laugardagur, 19. Desember 2009 20:23 |
|
Tímaritið Fuglar er komið út Fuglar, ársrit Fuglaverndar er komið út. Líkt og áður eru efnistök fjölbreytt. Meðal annars er fjallað um spóann, fuglinn í merki Fuglaverndar, sagt frá stöðu lundastofnsins í Vestmannaeyjum og viðtal er við Skúla Gunnarsson sem hefur verið fuglaskoðari frá blautu barnsbeini. Þá segir Sindri Skúlason frá smyrlum sem hann hafði kynni af síðastliðið sumar og birtir af þeim magnaðar myndir. Fastir liðir eru á sínum stað, svosem fuglarnir í Friðlandinu, fuglaljósmyndarinn, staða arnar- og rjúpnastofnins og margt fleira.
![]() Áskrift af Fuglum er einungis möguleg með aðild að Fuglavernd. Hægt er að gerast félagi hér á vefnum og fá Fugla senda heim.
|







