Fugl vikunnar er Æður: Algengasti fuglinn við Ísland á veturna
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 05. Janúar 2010 10:44

 

Jóhann Óli Hilmarsson

Æðurin er stór kafönd sem heldur sig nær eingöngu á og við sjó og er algengasta önd landsins.  Karlfuglinn, blikinn, er skrautlegur, svartur og hvítur, með rauðleita bringu og græna flekki á hnakka.  Kvenfuglinn, kollan, er í felulitum eins og flestar andakollur.  Æðarfuglinn er sjófugl, einnig á varptíma, en slæðingur verpur við ár og vötn allt að 20 km frá sjó. Hann verpur í byggðum, oft stórum og þéttum, í hólmum eða þar sem hann nýtur verndar.  Hreiðrið er opið, fóðrað með hinum verðmæta dúni, sem er verðmæt útflutningsvara.  Það er oftast staðsett við einhverja mishæð eða í manngerðum varphólfum.  Fæðan er kræklingur og önnur skeldýr, krabbadýr, grásleppuhrogn og fiskúrgangur.

Í árlegum vetrarfuglatalningum, sem Náttúrufræðistofnun skipuleggur um land allt á þessum árstíma (talningadagurinn nú er 27. desember) og hafa staðið samfellt frá árinu 1952, er æðurin ávalt algengasti fuglinn.  Talið er á um 100 svæðum um land allt, flestum við ströndina og hafa sést milli 50 og 60.000 æðarfuglar í hverri talningu á undanförnum árum.  Nánari upplýsingar um talningarnar á vefnum www.ni.is.  Á útmánuðum má oft sjá þúsundir æðarfugla í höfnum, sérstaklega þar sem loðnu er landað, en fuglinum finnast loðnuhrognin mikið hnossgæti.  Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson